Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar 3. maí 2026 13:00 Kæra Kristrún Frostadóttir Í aðdraganda komandi sveitastjórnarkosninga hafa málefni leikskólans verið í brennidepli. Við leikskólafólk fögnum því, enda er ekki vanþörf á. Við sem höfum valið leikskólann sem okkar starfsvettvang höfum kallað eftir því um áraraðir að stjórnmálafólk láti sig fyrsta skólastigið varða og bent á að áframhaldandi útþensla á leikskólakerfinu án þess að farið verði í öflugar aðgerðir til þess að bregðast við mönnunarvanda, þrengslum í húsnæði, skorti á kennurum, miklu álagi og mikilli starfsmannaveltu er stefna sem er fyrir löngu komin í þrot. Það eru auðvitað ekki nýjar fréttir. Ég sem leikskólastjóri og starfsmaður í leikskólum Kópavogs til rúmlega tveggja áratuga geri hinsvegar athugasemdir við hvernig þú hefur brugðist við þeim aðgerðum sem farið var í hér í Kópavogi til þess að bæta stöðuna í leikskólum bæjarins. Snemma á því kjörtímabili sem nú er að líða var stofnaður vinnuhópur sem átti að leggja til aðgerðir í leikskólum bæjarins. Í þessum hópi áttu sæti fulltrúar foreldra, leikskólakennara, leiðbeinenda, starfsfólks menntasviðs bæjarins og stéttarfélaga. Fulltrúar flokka í bæjarstjórn Kópavogs áttu líka sæti við borðið, þar með taldir þeir flokkar sem sitja nú í minnihluta. Þarna var samráðið og samtalið sem stjórnmálamenn lofa svo oft en vill verða meira í orði en á borði loksins virkt og virt. Fólk með fagþekkingu og reynslu af leikskólastarfi var fengið til alvöru ráðgjafar. Það voru tillögur þeirra sem urðu svo að hinu alræmda Kópavogsmódeli. Það að þú sem forsætisráðherra smættir Kópavogsmódelið og störf fagfólksins sem mótaði það niður í stefnumál pólitískra andstæðinga þinna, líkt og þú gerðir í ræðu og viðtölum 1. maí síðastliðin, og nýtir það til að búa til ódýr slagorð er niðurlægjandi fyrir þau sem lögðu fram fagþekkingu sína og reynslu í það starf sem var unnið. Kópavogsmódelið er ekki fullkomið og mun þurfa frekari þróunar við. Það sem er hinsvegar óumdeilt er að módelið hefur haft jákvæð áhrif í leikskólum bæjarins og að það er ekki stefnumál unnið af spunameisturum og almannatengslaráðgjöfum stjórnmálaflokka heldur þvert á móti afrakstur vinnu foreldra og fagfólks í leikskólum Kópavogsbæjar. Málflutningur sem málar okkur leikskólastarfsfólk í Kópavogi upp sem leiksoppa stjórnmálaflokka er ekki boðlegur. Hvað þá þegar hann kemur frá forsætisráðherra. Höfundur er leikskólastjóri í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Leikskólar Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar