Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2026 09:02 Halldór Garðar Hermannsson lýsir sigurkörfu sinni fyrir Þór Þ. gegn Tindastóli á Sauðárkróki vorið 2019. sýn sport Eftirminnileg atburðarás undir lok oddaleiks Tindastóls og Þórs Þ. í átta liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta 2019 er til umfjöllunar í ellefta þætti Augnablikanna sem nefnist „Stuldurinn í síkinu.“
Tindastóll vann fyrstu tvo leikina í einvíginu gegn Þór fyrir sjö árum og allt benti til þess að Stólarnir kæmust í undanúrslitin. Þórsarar knúðu hins vegar fram oddaleik með því að vinna leiki þrjú og fjögur. Í oddaleiknum blés ekki byrlega fyrir Þór. Tindastóll náði mest 23 stiga forskoti og þegar rétt rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka voru Stólarnir fjórtán stigum yfir, 90-76. En þá snerist leikurinn algjörlega á hvolf. Þórsarar minnkuðu muninn á ógnarhraða og eftir þriggja stiga körfu Nikolas Tomsick munaði aðeins einu stigi á liðunum, 93-92. Ragnar Örn Bragason fékk svo tækifæri til að koma gestunum yfir en án árangurs og heimamenn fengu boltann þegar níu sekúndur voru eftir. Í leikhléi sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Þórs, við sína menn að þeir þyrftu að stela boltanum. Og það gerðist. Kinu Rochford náði boltanum sem endaði hjá Halldóri Garðari Hermannssyni sem skoraði og kom Þór yfir, 93-94. Hann fékk vítaskot að auki en brenndi af því og tíminn rann út. „Við stelum honum og þetta gerist svo hratt. Frá því að við stelum honum, ég veit ekki, hvað eru þetta, 2-3 sekúndur? Þú ert bara áhorfandi á hliðarlínu sem hefur enga stjórn á neinu og vonar að eitthvað sé að fara að gerast,“ sagði Baldur. Klippa: Augnablikin - Stuldurinn í Síkinu Halldór Garðar man vel eftir sigurkörfunni í Síkinu. „Um leið og ég sé Nick slá hann hleyp ég eins hratt fram og ég get. Svo fær Jaka [Brodnik] boltann á miðjunni og ég er aðeins fyrir framan hann,“ sagði Halldór Garðar. „Hann sendir á mig og ég tek mér smá tíma, horfi upp og hugsa hvort ég ætti að skjóta eða fara alla leið og ég sé að ég hef tíma til að fara fara alla leið. Ég tek smá hik og Brynjar [Þór Björnsson] fipast aðeins. Svo keyri ég bara á körfuna og legg hann ofan í.“ Þór fór í undanúrslit þar sem liðið tapaði fyrir Íslandsmeisturum KR, 3-1. Brot úr „Stuldinum í síkinu“, ellefta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 19:05 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Tindastóll Augnablikin Tengdar fréttir „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin. 27. apríl 2026 09:03 Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31 Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02 „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna. 13. apríl 2026 09:03 Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00 Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03 Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00 Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira
„Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin. 27. apríl 2026 09:03
Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31
Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02
Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02
„Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna. 13. apríl 2026 09:03
Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00
Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03
Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02