Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Lovísa Arnardóttir skrifar 2. maí 2026 08:23 Donald Trump útskýrði ekki nánar hvernig Evrópusambandið er ekki að standa við sinn hluta samningsins. Vísir/EPA Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar.
Í frétt BBC segir að þegar Trump var spurður nánar út í það hvernig Evrópusambandið hefði ekki staðið við samninginn sagði hann: „Við erum með viðskiptasamning við Evrópusambandið. Þeir voru ekki að fara eftir honum. Þannig að ég hækkaði tolla á bíla og vörubíla.“ Þegar Trump tilkynnti um tollahækkanirnar hvatti hann evrópska bílaframleiðendur til að flytja framleiðslu sína til Bandaríkjanna. „Það er fullkomlega skilið og samþykkt að ef þeir framleiða bíla og vörubíla í verksmiðjum í Bandaríkjunum verða ENGIN TOLLGJÖLD,“ stóð í færslu hans á Truth Social. Hann sagði að milljörðum dollara væri verið að fjárfesta í bíla- og vörubílaverksmiðjum víðs vegar um landið, tölur sem hann lýsti sem „metfjárhæð í sögu bíla- og vörubílaframleiðslu“. „Það hefur aldrei verið neitt í líkingu við það sem er að gerast í Ameríku í dag,“ bætti Trump við. Viðkvæmur iðnaður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins svaraði því og sagði að þau myndu halda öllum sínum möguleikum opnum til að vernda hagsmuni Evrópusambandsins. Í tilkynningu frá þeim kom fram að það væri verið að standa við það samkomulag sem hefði verið gert en að þau væru einnig að leita útskýringa frá Bandaríkjunum. I frétt BBC segir að með því að hækka tolla á bílaframleiðslu hafi hann valið iðnað sem sé nokkuð viðkvæmur fyrir því. Bílaframleiðsla sé stór hluti af hagkerfi Evrópu. Tilkynningin komi um ári eftir að Evrópusambandið og Bandaríkin komust að samkomulagi um að tollar á vörur frá Evrópu ættu flestir að vera um 15 prósent sem var töluvert minna en þau 30 prósent sem Trump hafði hótað að setja á. Í staðinn átti Evrópa að fjárfesta í Bandaríkjunum og gera breytingar sem áttu að vera hagkvæmar fyrir hagkerfi Bandaríkjanna. Mánuðina eftir þetta jókst hins vegar spenna vegna hótana Trumps forseta um að innlima Grænland sem varð til þess að Evrópuþingið frestaði því í janúar að samþykkja viðskiptasamninginn. Hann var að lokum samþykktur af Evrópuþinginu í mars, en aðeins eftir að ákvæði hafði verið bætt við sem heimilaði að fresta honum ef Trump-stjórnin væri talin hafa „grafið undan markmiðum samningsins, mismunað efnahagsaðilum ESB, ógnað landhelgi aðildarríkja, utanríkis- og varnarstefnu þeirra, eða beitt efnahagslegri þvingun“. Síðan þá hafa viðræður aftur stöðvast samkvæmt frétt BBC vegna deilna um stál og ál. Stór evrópsk hagkerfi eins og Þýskaland og Frakkland höfðu hafnað áformum Bandaríkjanna um að breyta tollum á fjölmargar vörur. Í yfirlýsingu sinni sagði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að ESB væri að innleiða samninginn „í samræmi við hefðbundna löggjafarvenju og héldi bandarískum stjórnvöldum fullkomlega upplýstum á meðan á því stæði“. Bernd Lange, formaður alþjóðaviðskiptanefndar Evrópuþingsins, segir hegðun forsetans óásættanlega. Vísir/EPA Munu halda möguleikum sínum opnum Í frétt BBC er svo haft eftir talsmanni framkvæmdastjórnarinnar að þau séu fullkomlega skuldbundin fyrirsjáanlegu og gagnkvæmu sambandi yfir Atlantshafið. „Ef Bandaríkin grípa til aðgerða sem eru í ósamræmi við sameiginlegu yfirlýsinguna, munum við halda öllum möguleikum opnum til að vernda hagsmuni ESB,“ sagði hann. Bernd Lange, formaður alþjóðaviðskiptanefndar Evrópuþingsins, sagði við BBC um þetta mál að yfirlýsing Trumps sýndi „hversu óáreiðanleg Bandaríkin“ eru sem viðskiptaaðili. „Framkoma Trumps forseta er óásættanleg,“ sagði hann og vísaði á bug röksemdum forsetans um að ESB væri ekki að standa við sinn hluta samningsins og sagði að Evrópuþingið væri í því ferli að semja nauðsynlega löggjöf sem það stefndi að því að ljúka í júní. Óásættanleg framkoma Hann viðurkenndi að nefnd hans hefði gert hlé á innleiðingu samningsins vegna þrýstings frá Bandaríkjunum vegna Grænlands og afleiðinga ákvörðunar Hæstaréttar Bandaríkjanna. En hann sagði að Bandaríkin hefðu „ítrekað brotið samninginn“ og benti á vörur sem innihalda stál og ál sem nú sæta að meðaltali 26 prósenta tollum. „Þessi nýjasta aðgerð sýnir hversu óáreiðanlegur bandaríski aðilinn er. Við höfum þegar orðið vitni að þessum geðþóttaárásum frá Bandaríkjunum í Grænlandsmálinu; þetta er engin leið til að koma fram við nána samstarfsaðila. Nú getum við aðeins brugðist við með fyllstu skýrleika og festu, og byggt á styrkri stöðu okkar,“ er haft eftir Lange í frétt BBC.
Skattar, tollar og gjöld Evrópusambandið Bandaríkin Bílar Grænland Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira