Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar 1. maí 2026 07:32 Það fer ekki framhjá neinum sem heimsækir Grímsey að þarna er samfélag sem býr yfir ótrúlegum styrk og þrautseigju. Með þetta í farteskinu hafa Grímseyingar haldið áfram og sýnt okkur samheldni og úthald við aðstæður sem íbúar í þéttbýlinu mundu flestir telja ólíðandi. En síðustu aðgerðir eða kannski væri rétt að segja aðgerðarleysi stjórnvalda eru þannig að úthald Grímseyinga fer minnkandi. Fækkun á ferðum ferjunnar Sæfara, hár flutningskostnaður til og frá eyjunni og yfirlýsingar um breytingar á byggðakvóta sem hefur verið grunnurinn að atvinnulífi í eyjunni gera það að verkum að í fyrsta sinn sé ég Grímseyinga horfa vondaufa til framtíðar. Á ársgrundvelli búa í Grímsey um 15 manns. En þegar vorar og farfuglarnir snúa til baka lifnar allt við. Yfir sumarmánuðina fer íbúafjöldinn upp í um 80 manns enda halda brottfluttir Grímseyingar mikilli tryggð við heimkynni sín. Margir eiga húsin sín enn og þar með öruggt skjól í eyjunni. Engin uppgjöf í endurbyggingu Þegar Miðgarðakirkja brann í september 2010 varð samfélagið fyrir þungu höggi. Kirkjan var hjarta samfélagsins og átti sér langa sögu. Grímseyingar létu auðvitað ekki deigan síga. Þau tóku sig saman og byggðu nýja glæsilega kirkju með stuðningi velunnara sinna. Kirkjan er nú tilbúin og er eitt af fegurri guðshúsum landsins í einfaldleika sínum. Það er þessi hugsun sem skilgreinir Grímseyinga; að gefast ekki upp þó svo að raunirnar séu margar. Nýja kirkjan er því ekki bara fallegt mannvirki. Hún er tákn um samfélag sem lætur ekki bugast. Aðgerðir og aðgerðaleysi En þrátt fyrir endurbyggingu og þrautseigju íbúanna er staðan sem blasir við í dag sú að stöðugt er verið að veikja grunnstoðir samfélagsins, ekki vegna náttúrlegra aðstæðna heldur vegna pólitískra ákvarðana og aðgerðaleysis. Fyrst er að nefna samgöngur til Grímseyjar. Löngu er kominn tíma á að endurnýja ferjuna Sæfara sem hefur verið frá því í nóvember sl samtals 3 mánuði í slipp með hléum þó. Það ætti að segja allt um ástand skipsins. Tillögur um að fækka ferðum Sæfara eru enn eitt áfallið. Það er ekki bara einfalt hagræðingarmál sem skiptir litlu máli. Svona breytingar hafa bein áhrif á daglegt líf íbúanna og minnka enn frekar samkeppnishæfni eyjunnar sem er lítil fyrir. Segja má að Sæfari sé líflínan við Grímsey, án ferjunnar verður tengingin við fasta landið veik og atvinnulífið sömuleiðis. Og það mun molna hægt og bítandi undan þessu nyrsta þorpi landsins með öllum breytingum á áætlun ferjunnar. Þá munu boðaðar breytingar á byggðakvóta hafa verulega neikvæð áhrif á Grímsey þar sem atvinnulíf eyjunnar byggist að mestu leyti á honum, bæði sértækum byggðakvóta Byggðastofnunar og almennum byggðakvóta. Fáir útgerðaraðilar eiga enn aflamark og þess vegna skiptir byggðakvótinn öllu máli. Lífið í eynni stendur og fellur með sjávarútvegi, svo einfalt er það. Hann er hryggjarstykkið þó svo að ferðaþjónustan hafi vaxið umtalsvert á síðustu árum. En hún veikist líka þegar samgöngur eru ótryggar. Baráttuþrekið dvínar Það er ekki ein stór ákvörðun sem veldur því að baráttuþrek íbúa í eynni fer þverrandi heldur frekar röð smærri ákvarðana sem allar hafa veikt byggðina. Ferðum með ferjunni er fækkað og óvissa er í atvinnulífinu. Samanlagt geta slíkar ákvarðanir leitt til þess að búsetuskilyrði í Grímsey verða hægt og rólega þannig að jafnvel hörðustu eyjaskeggjar missa jafnvel móðinn og þegar það gerist er hætt við að það sé um seinan að taka ákvarðanir sem snúa þessari þróun við. Og slík staða væri ekki aðeins tap fyrir Grímsey. Slík staða væri tap fyrir allt landið. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akureyri Grímsey Samgöngur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Byggðamál Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun