Sport

Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stór­leikir um helgina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hermann Hreiðarsson og lærisveinar hans hjá Val ætla að svara fyrir bikartapið gegn KR um helgina.
Hermann Hreiðarsson og lærisveinar hans hjá Val ætla að svara fyrir bikartapið gegn KR um helgina. vísir/bjarni

Það er heitt í kolunum eftir fyrri leikina í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og það verður heitt í kolunum í Bestu og Bónus deildunum um helgina.

Það voru skiptar skoðanir í þætti dagsins hvort Arsenal hefði átt að fá tvö víti í leiknum gegn Atletico í gær og verður eflaust rifist um það næstu daga.

Tindastóll braut sópana sem Garðbæingar mættu með í Skagafjörðinn í gær og nú spá allir og amma þeirra því að Stólarnir fari í úrslitin. Það hlýtur að vera bensín fyrir Stjörnuna.

Valur mætir til Grindavíkur í kvöld án Franks Aron Booker og verður áhugavert að sjá hvernig þeir leysa það.

Næstu leikir í undanúrslitum Bónus kvenna fara fram á morgun og laugardag. Margir hallast að oddaleikjum í einvígjunum. Það eru svo tveir leikur í Bestu kvenna í kvöld.

Á laugardag eru tveir risaleikir í Bestu deild karla. Akureyrarslagur á milli Þórs og KA og svo Reykjavíkurslagur hjá Val og KR.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×