Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir skrifar 29. apríl 2026 19:00 Hvenær varð það markmið í sjálfu sér að koma börnum sem allra fyrst frá foreldrum sínum og inn á leikskóla? Nú er mínu þriðja og síðasta fæðingarorlofi að ljúka. Ég hef farið í gegnum þetta áður og samt sit ég hér aftur með sömu tilfinningu. Á mánudaginn á ég að mæta aftur til vinnu. Ég upplifi mig tilneydda í að gera eitthvað sem ég vil ekki þegar ég ætti í raun að hafa val. En kerfið býður ekki upp á það. Við tölum oft um jafnrétti. Og það skiptir máli. En ég velti því fyrir mér hvort við séum stundum búin að gleyma sveigjanleikanum og fjölbreyttum aðstæðum fjölskyldna. Mér finnst eins og áherslan í umræðunni sé fyrst og fremst á að koma börnum sem allra fyrst inn á leikskóla, frekar en að velta fyrir sér hvað hentar þeim og fjölskyldum þeirra best á þessum fyrstu árum. Fyrstu tvö árin skipta miklu máli fyrir tengslamyndun, öryggi og þroska barna. Samt virðist sú staðreynd stundum víkja fyrir kröfum vinnumarkaðarins. Staðreyndin er einfaldlega sú að fókusinn er fyrst og fremst á að foreldrar komist sem fyrst aftur til vinnu. En hvað með börnin sjálf? Hvað með þeirra hagsmuni? Nú virðist sem sveitarfélög keppist um að geta boðið börnum leikskólapláss sem allra fyrst. Eins og það sé sjálfgefið að það sé alltaf það besta fyrir alla, bæði börn og foreldra. Á sama tíma virðist hins vegar vera miklu minni skilningur fyrir því að foreldrar vilji einfaldlega fá tækifæri til að vera lengur heima með börnunum sínum á þessum fyrstu árum sem koma aldrei aftur. Og að fá stuðning til þess. Slík stuðningskerfi gætu í raun létt á leikskólakerfinu sjálfu og aukið sveigjanleika fyrir fjölskyldur sem eru með mismunandi þarfir. Það sem gleymist í umræðunni er líka það tímabil sem á sér stað eftir að fæðingarorlofi lýkur og þegar barn hefur ekki fengið úthlutað pláss á leikskóla. Það bitnar hvað mest á foreldrum þeirra barna sem lenda utan hefðbundinna innritunartíma leikskóla. Þarna er gat í kerfinu þar sem foreldrar eru þegar neyddir til að brúa bilið án tekna. Það er raunveruleikinn í dag óháð því hvaða skoðun fólk hefur á fyrirkomulaginu. Hvað eiga þeir foreldrar að gera? Á fólk einfaldlega að lifa á loftinu? Þess vegna finnst mér mikilvægt að skoða fleiri leiðir, eins og heimgreiðslur til foreldra sem vilja vera lengur heima með börnum sínum. Slíkar lausnir geta nýst þeim sem eru nú þegar launalausir heima með börn sem hafa ekki fengið leikskólapláss, til dæmis vegna aldurs eða biðstöðu, og aukið þannig valfrelsi fjölskyldna á sama tíma og þær létta á leikskólakerfinu fyrir þá sem þurfa á plássi að halda. Umræðan um þessar leiðir fer þó oft fljótt í ákveðinn ramma, þar sem megináherslan verður á áhrif þeirra á stöðu kvenna á vinnumarkaði og þar hafa raddir Samfylkingarinnar og Viðreisnar verið áberandi. Sú umræða á alveg rétt á sér. En stundum finnst mér hún skyggja á aðra ekki síður mikilvæga hlið: að margir foreldrar eru þegar í þeirri stöðu að hafa lítið raunverulegt val og standa frammi fyrir launalausu bili milli fæðingarorlofs og leikskólapláss. Er áherslan í umræðunni orðin svo sterk á jafnréttissjónarmið og stöðu foreldra á vinnumarkaði að hún skyggi á þá raunverulegu fjárhagslegu stöðu sem margar fjölskyldur standa frammi fyrir þegar valkostir eru ekki til staðar? Þetta snýst ekki um að stilla konum og körlum upp á móti hvort öðru heldur um að tryggja raunverulegt val fyrir fjölskyldur. Höfundur er viðskiptafræðingur að mennt og gegni stjórnunarstöðu hjá Hafnarfjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun