Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Lovísa Arnardóttir skrifar 29. apríl 2026 15:03 Fólk er hvatt til þess að tilkynna póstana til Netöryggissveitarinnar. Vísir/Getty ISNIC varar rétthafa . is léna við tölvupóstum sem hafa borist undanfarna daga þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland fyrir íslensk lén.
Í tilkynningu frá ISNIC segir að margir rétthafar .is léna hafi síðustu daga fengið slíka pósta. Mikilvægt sé að árétta að þessir póstar berist ekki frá ISNIC og séu líklega hluti af svikaherferð. „Við hvetjum viðtakendur til að sýna aðgát, smella ekki á tengla í póstunum og gefa hvorki upp persónu- né greiðsluupplýsingar,“ segir í tilkynningu en að neðan má sjá dæmi um greiðsluseðil sem er sendur með póstinum. Greiðsluseðill frá DMS Iceland. Aðsend Ekki verið að greiða fyrir lénin Þór Jensen framkvæmdastjóri ISNIC segir að í póstunum séu viðtakendur hvattir til að greiða fyrir meintar „tilkynningar um endurnýjun léns“. „Upphæðirnar sem krafist er nema um 15–20 þúsund krónum. Við vitum þegar um nokkur tilvik þar sem einstaklingar og fyrirtæki hafa greitt í þeirri trú að þau væru að endurnýja lén sín, en svo er ekki,“ segir Þór. Hann segir DMS Iceland ekki skráðan á Íslandi en reki vefsíðu á léninu dmsiceland.com þar sem félagið segist vera staðsett á Íslandi. Hann segir ISNIC hafa gert CERT-IS viðvart um þessi svik. Notendur sem hafa fengið slíkan póst eru hvattir til að tilkynna þá til CERT-IS í gegnum gátt á Ísland.is.
Netglæpir Tækni Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira