Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar 30. apríl 2026 12:01 Að geta starfað í sínum heimabæ eru ómetanleg lífsgæði. Margir Hafnfirðingar hafa lagt mikla vinnu og orku í sérhæfingu á sínu sviði, en þurfa því miður oft að keyra langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vinnu við hæfi. Þessu þurfum við að breyta. Tíminn er dýrmætasta auðlindin okkar Að sleppa við 40-60 mínútna akstur á dag eru ekki bara þægindi, það eru forréttindi og raunveruleg kjarabót. Við skulum skoða stærðfræðina aðeins betur: - Ef þú ert 40 mínútur í bílnum á dag eru það 14 klukkustundir á mánuði. - Ef þú ert 60 mínútur í bílnum á dag jafngildir það um heilum sólarhring á mánuði. Þetta er dýrmætur tími sem margir Hafnfirðingar eyða í stressi á Reykjanesbrautinni, í stað þess að verja honum í eitthvað sem skiptir máli. Lífið er meira en bara vinnan og umferðin Fólk í dag kallar eftir meiri lífsgæðum. Hver vill ekki geta sótt barnið sitt fyrr af æfingu og fylgst með, skroppið í ræktina, farið í góðan göngutúr áður en verslað er í matinn? Eða einfaldlega kíkt í kaffi til ömmu án þess að vera á nálum? Þetta hljómar eins og einfaldir hlutir, en það eru einmitt þessir hlutir sem skapa mestu lífsgæðin. Hafnarfjörður verði eftirsóknarverður vinnustaður Til að gera þessa sýn að veruleika þarf Hafnarfjarðarbær að laða að fyrirtæki og stofnanir. Við eigum að vera eftirsóknarverður staður fyrir atvinnulífið, svo fjölbreytt atvinnutækifæri skapist í okkar eigin nærumhverfi og færri þurfi að sækja vinnu yfir bæjarmörkin. Fáum tímann okkar til baka. Það er mál sem við í Viðreisn ætlum að vinna að. Göngum í verkin! Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Að geta starfað í sínum heimabæ eru ómetanleg lífsgæði. Margir Hafnfirðingar hafa lagt mikla vinnu og orku í sérhæfingu á sínu sviði, en þurfa því miður oft að keyra langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vinnu við hæfi. Þessu þurfum við að breyta. Tíminn er dýrmætasta auðlindin okkar Að sleppa við 40-60 mínútna akstur á dag eru ekki bara þægindi, það eru forréttindi og raunveruleg kjarabót. Við skulum skoða stærðfræðina aðeins betur: - Ef þú ert 40 mínútur í bílnum á dag eru það 14 klukkustundir á mánuði. - Ef þú ert 60 mínútur í bílnum á dag jafngildir það um heilum sólarhring á mánuði. Þetta er dýrmætur tími sem margir Hafnfirðingar eyða í stressi á Reykjanesbrautinni, í stað þess að verja honum í eitthvað sem skiptir máli. Lífið er meira en bara vinnan og umferðin Fólk í dag kallar eftir meiri lífsgæðum. Hver vill ekki geta sótt barnið sitt fyrr af æfingu og fylgst með, skroppið í ræktina, farið í góðan göngutúr áður en verslað er í matinn? Eða einfaldlega kíkt í kaffi til ömmu án þess að vera á nálum? Þetta hljómar eins og einfaldir hlutir, en það eru einmitt þessir hlutir sem skapa mestu lífsgæðin. Hafnarfjörður verði eftirsóknarverður vinnustaður Til að gera þessa sýn að veruleika þarf Hafnarfjarðarbær að laða að fyrirtæki og stofnanir. Við eigum að vera eftirsóknarverður staður fyrir atvinnulífið, svo fjölbreytt atvinnutækifæri skapist í okkar eigin nærumhverfi og færri þurfi að sækja vinnu yfir bæjarmörkin. Fáum tímann okkar til baka. Það er mál sem við í Viðreisn ætlum að vinna að. Göngum í verkin! Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar