Upp­gjörið: FH - Valur 31-15 | FH jafnaði ein­vígið í Krikanum

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Haukar-FH
Vísir/Anton Brink

FH sigraði Val 31-25 og jafnaði þar með metin í einvíginu í úrslitakeppni Olís deildarinnar.

Leikurinn byrjaði af krafti þar sem við fengum fiskað víti og varið víti í fyrstu sókn leiksins. Önnur sókn leiksins var svo álíka áhugaverð þar sem við fengum tveggja mínútna brottvísun og varið skot. Loks kom þó fyrsta mark leiksins eftir rúmlega tveggja mínútna leik.

Fyrsti þriðjungur fyrri hálfleiks var nokkuð jafn en fljótlega náðu Hafnfirðingarnir forystunni. Valur reyndi að minnka bilið en um leið og munurinn var eitt mark voru FH fljótir að koma því aftur í tvö og loks þrjú mörk.

18-15 og þrjú mörk skildu liðin að þegar gengið var til búningsherbergja.

FH gerði markmannsbreytingu í síðari hálfleik þar sem stemningsmaðurinn Jón Þórarinn Þorsteinsson mætti í markið. Honum tókst að loka marki FH-inga fyrstu átta mínúturnar í hálfleiknum.

FH hélt áfram að gera vel í síðari hálfleik og átti Valur aldrei séns á að komast einhvað nær. Lokatölur 31-25 og FH jafnar einvígið 1-1.

Atvik leiksins

Vítið sem Daníel Freyr Andrésson varði á fyrstu mínútu leiksins fannst mér setja svolítið tóninn fyrir það sem koma skyldi.

Stjörnur og skúrkar

Garðar Ingi Sindrason var markahæstur fyrir FH með sjö mörk, þar næstur kom Ómar Darri Sigurgeirsson.

Jón Þórarinn Þorsteinsson kom svo öflugur inn í markið í síðari hálfleik og var með 37% markvörslu.

Hjá Val var Arnór Snær Óskarsson markahæstur með fjögur mörk.

Stemning og umgjörð

Frábær stemning hjá Hafnfirðingunum í Kaplakrika. Það var ekki jafn þétt setið Valsmegin hver sem ástæðan fyrir því sé.

Dómarar

Dómaratvíeykið þekkta Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson stóðu vaktina í kvöld. Leikurinn fékk að flæða ágætlega og lítið sem ekkert um vafamál. Stóðu sig með prýði svona eins og venjulega bara.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira