Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar 27. apríl 2026 12:02 Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg hefur litið dagsins ljós. Í fyrsta sinn setjum við fram heildstæða sýn og áætlun um stóraukna fjárfestingu í innviðum fyrir gangandi og meiri natni í þjónustu við gangandi. Fyrir börnin okkar, öryggi þeirra og sjálfstæði. Fyrir mannlífið, tengslin, heilsuna og vellíðanina. Fyrir hreint loft og loftslagið. Markmiðið er að fjölga gangandi og gera göngu að raunhæfum valkosti í daglegu lífi. Í dag vilja um 25% ganga til vinnu, nær tvöfalt fleiri en gera það í raun. Það sýnir að tækifærin eru til staðar og að við höfum verk að vinna ef við ætlum að hlusta á íbúa. Viljinn endurspeglast einnig í jákvæðri þróun síðustu ára en hlutfall virkra ferðamáta hefur aukist úr 11% árið 2008 í 23% árið 2024. Fjárfesting í innviðum mótar val. Í áratugi hefur megináhersla verið lögð á innviði fyrir bíla, allt frá tíma þegar mun fleiri notuðu aðra samgöngumáta. Það var meðvituð ákvörðun að byggja upp bílaborg, og því er auðveldast að keyra í dag. En það þýðir líka að við getum byggt eitthvað annað. Ef við getum skapað bílaborg getum við skapað lífsgæðaborg. Við vitum að það virkar. Hér er gott dæmi um að fjárfesting í innviðum skilar árangri. Um 8% ferða eru farnar á hjóli í dag. Árið 2010 þegar fyrsta hjólreiðaáætlun borgarinnar var samþykkt voru þær aðeins 2%. Sú fjórföldun sýnir skýrt að innviðir skipta máli, ákvarðanir um fjárfestingar skipta máli. Öryggi barna er sérstakt áhersluatriði stefnunnar. Við viljum sömuleiðis draga úr því öráreiti sem gangandi mæta í dag, hvort sem það er þegar gangstéttir eru of þröngar eða enda fyrirvaralaust, snjóhaugum er plantað á miðjar gangstéttir eða gangstéttir fylgir ekki styðstu leið milli staða eða þeim slóðum eða óskastígum sem fólk velur í raun. Ég hvet þig til að kynna þér stefnuna og aðgerðir hennar og veita okkur endurgjöf. Stefnan er í samráðsgátt út daginn í dag. Til hamingju Reykjavík. Áfram gakk! Höfundur er formaður stýrihóps um gönguvæna borg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Björt Guðjónsdóttir Göngugötur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg hefur litið dagsins ljós. Í fyrsta sinn setjum við fram heildstæða sýn og áætlun um stóraukna fjárfestingu í innviðum fyrir gangandi og meiri natni í þjónustu við gangandi. Fyrir börnin okkar, öryggi þeirra og sjálfstæði. Fyrir mannlífið, tengslin, heilsuna og vellíðanina. Fyrir hreint loft og loftslagið. Markmiðið er að fjölga gangandi og gera göngu að raunhæfum valkosti í daglegu lífi. Í dag vilja um 25% ganga til vinnu, nær tvöfalt fleiri en gera það í raun. Það sýnir að tækifærin eru til staðar og að við höfum verk að vinna ef við ætlum að hlusta á íbúa. Viljinn endurspeglast einnig í jákvæðri þróun síðustu ára en hlutfall virkra ferðamáta hefur aukist úr 11% árið 2008 í 23% árið 2024. Fjárfesting í innviðum mótar val. Í áratugi hefur megináhersla verið lögð á innviði fyrir bíla, allt frá tíma þegar mun fleiri notuðu aðra samgöngumáta. Það var meðvituð ákvörðun að byggja upp bílaborg, og því er auðveldast að keyra í dag. En það þýðir líka að við getum byggt eitthvað annað. Ef við getum skapað bílaborg getum við skapað lífsgæðaborg. Við vitum að það virkar. Hér er gott dæmi um að fjárfesting í innviðum skilar árangri. Um 8% ferða eru farnar á hjóli í dag. Árið 2010 þegar fyrsta hjólreiðaáætlun borgarinnar var samþykkt voru þær aðeins 2%. Sú fjórföldun sýnir skýrt að innviðir skipta máli, ákvarðanir um fjárfestingar skipta máli. Öryggi barna er sérstakt áhersluatriði stefnunnar. Við viljum sömuleiðis draga úr því öráreiti sem gangandi mæta í dag, hvort sem það er þegar gangstéttir eru of þröngar eða enda fyrirvaralaust, snjóhaugum er plantað á miðjar gangstéttir eða gangstéttir fylgir ekki styðstu leið milli staða eða þeim slóðum eða óskastígum sem fólk velur í raun. Ég hvet þig til að kynna þér stefnuna og aðgerðir hennar og veita okkur endurgjöf. Stefnan er í samráðsgátt út daginn í dag. Til hamingju Reykjavík. Áfram gakk! Höfundur er formaður stýrihóps um gönguvæna borg.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar