Neytendur

Löggan bankaði upp á á skír­dag

Bjarki Sigurðsson skrifar
Aðalgeir Axelsson er eigandi Kalt og gott á Akureyri.
Aðalgeir Axelsson er eigandi Kalt og gott á Akureyri. Vísir/Bjarki

Sífleiri versla áfengi hjá netverslunum á Akureyri eftir að ÁTVR færði vínbúð bæjarins úr miðbænum á Norðurtorg í Þorpinu. Á skírdag lokaði lögreglan öllum afhendingarstöðum áfengis í bænum og kallar eigandi netverslunar eftir skýrari lagaramma. 

Á skírdag heimsótti lögreglan á Akureyri þrjá afhendingarstaði áfengis og lét loka þeim þar sem óheimilt er að afhenda áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar. Eigendur staðanna sinntu fyrirmælum lögreglu og voru þeir einnig lokaðir á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.

Gott samstarf með lögreglunni

Aðalgeir Axelsson, eigandi Kalt og gott á Akureyri, segir löggjöfina óskýra hvað varðar netverslanir með áfengi.

„Auðvitað er þetta á gráu svæði og óskýr löggjöf. Við teljum okkur vera innan lagarammans. En þegar lögreglan kemur inn og bendir á þetta viljum við vinna með henni og gerum það að sjálfsögðu,“ segir Aðalgeir.

Skýrari reglur

Hann kallar eftir því að stjórnvöld uppfæri áfengislöggjöfina.

„Ég held að það séu allir sammála um það, sama hvort það eru við eða fólkið í landinu. Það þarf að hafa þetta skýrara,“ segir Aðalgeir. 

Umdeildir flutningar ÁTVR

Í fyrra flutti ÁTVR verslun sína úr miðbæ Akureyrar á Norðurtorg í Þorpinu. Aðalgeir segir marga Akureyringa ekki ánægða með tilfærsluna.

„Auðvitað voru skiptar skoðanir á þessu, Akureyringurinn er vanafastur þannig þetta var sjokk fyrir einhverja. Með þessari verslun hjá okkur erum við að mæta þörfum fólks í bænum. Svo er fólk hinum megin í bænum sem er helvíti lengi að fara upp eftir,“ segir Aðalgeir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×