Skoðun

Hættu­legar skóla­lóðir

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Á undanförnum árum hefur safnast upp veruleg viðhaldsþörf í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar, bæði hvað varðar húsnæði og skólalóðir. Vandamálið er ekki nýtt heldur afleiðing þess að viðhald hefur lengi ekki verið í forgangi. Staðan er einfaldlega þannig að sumar lóðir og húsnæði er einfaldlega ekki öruggt fyrir börnin. Í barnvænu samfélagi eins og Hafnarfirði ætti slíkt ekki að gerast.

Innviðir hafa ekki vaxið

Á síðustu fjórum árum hefur Viðreisn náð ýmsum mikilvægum bótum í gegn í Hafnarfirði, meðal annars að fjármagn til viðhalds leik- og grunnskóla húsnæðis og lóða sé stóraukið, ásamt því að gerð verði framkvæmdaáætlun til næstu ára. Þrátt fyrir það er ljóst að uppsöfnuð þörf og margra ára svelt í fjármagni til viðhalds að enn vantar verulega upp á þegar kemur að reglulegu og markvissu viðhaldi leik- og grunnskóla.

Raunveruleikinn er sá að hér er ekki aðeins um fjárhagslegt vandamál að ræða, heldur einnig skort á skilningi á mikilvægi málaflokksins. Þrátt fyrir að íbúum Hafnarfjarðarbæjar hafi fjölgað úr um 25 þúsund árið 2008 í yfir 30 þúsund í dag, og að leik- og grunnskólum hafi á sama tíma fjölgað, hefur umfang verkefna vaxið án þess að mannafli eða innviðir hafi fylgt þeirri þróun

Viðhald er forvörn

Víða snýst viðhald enn fyrst og fremst um að slökkva elda, bregðast við brýnum þörfum fremur en að tryggja reglulegt og fyrirbyggjandi viðhald sem kemur í veg fyrir að vandinn endurtaki sig.

Gott viðhald er ekki aðeins kostnaður heldur forvörn. Það snýst um öryggi barna, heilnæmt starfsumhverfi kennara og annarra starfsmanna og virðingu fyrir sameiginlegum eignum bæjarbúa. Ástand sumra skólalóða hefur á síðustu árum verið með þeim hætti að það hefur valdið réttmætum áhyggjum, og því er sérstaklega mikilvægt að tryggja stöðuga og nægilega fjármögnun á því sviði.

Viðreisn gengur í verkin

Skólar eiga ekki að vera afgangsstærð í fjárhagsáætlun bæjarins.

Þegar rætt er um forgangsröðun fjármagns kemur oft fram að fjármunir séu eyrnamerktir öðrum verkefnum til lengri tíma. En það breytir ekki þeirri staðreynd að viðhald skólahúsnæði og lóða bæjarins hefur setið eftir. Dæmi eru um að fjármagni sem ætlað var í nauðsynlegt viðhald skólahúsnæðis hafi verið ráðstafað annað, á meðan skólarnir bíða áfram.

Við munum halda áfram að leggja ríka áherslu á að í komandi kjörtímabili verði tryggð raunveruleg innspýting í viðhald leik- og grunnskólahúsnæðis og skólalóða í Hafnarfirði. Það er fjárfesting í börnum, framtíð bæjarins og hún borgar sig.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×