Fjölskylduvænt samfélag í verki Guðný Björk Pálmadóttir skrifar 20. apríl 2026 09:32 Árborg er öflugt og lifandi samfélag þar sem samheldni og þátttaka hafa lengi verið styrkur okkar. Við erum íþrótta bær og á þeim grundvelli mætumst við, byggjum tengsl og stöndum saman. Um þetta þarf að standa vörð og ef við viljum áfram kalla Árborg fjölskylduvænt sveitarfélag þurfum við skýrar sýn í þá átt og raunverulega aðgerðaáætlun. Fjölskylduvænt samfélag er ekki sjálfgefið. Það mótast af því hvernig sveitarfélagið forgangsraðar fjármagni, skipulagi og þjónustu. Fjölskylduvæn stefna felur í sér að þjónusta sé aðgengileg, stuðningur virki þegar á reynir og að fólk á öllum aldurskeiðum upplifi sig tilheyra samfélaginu. Við í Viðreisn viljum: að börn geti alist upp í öruggu og hvetjandi umhverfi þar sem allir hafa jöfn tækifæri. að börn og fullorðnir fái góða þjónustu og raunverulegan stuðning þegar á þarf að halda. að fjölskyldur, í allri sinni fjölbreytni, finni sér stað og finnist það tilheyra. að nærumhverfið sé öruggt, aðlaðandi og lifandi. að Árborg verði samfélag með fjölbreytt tækifæri þar sem fólk vill búa, vinna og eldast. Grunnþjónusta sem heldur vatni Það er óásættanlegt að foreldrar búi við óvissu eftir lok fæðingarorlofs. Sveitarfélag sem ætlar að vera fjölskylduvænt verður að hjálpa til við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með raunhæfum lausnum. Hér þarf þverpólitískan vilja til að leysa málin og þora að hugsa út fyrir kassann. Viðreisn mun beita sér fyrir að finna raunverulegar lausnir í þessum málaflokki, til dæmis með auknum stuðningi og samstarfi við dagforeldra, almennt hvetja og liðka fyrir einkaframtakinu og áframhaldandi byggingu leikskóla. Skipulag sem setur lífsgæði í forgang Örugg hverfi, góðar göngu- og hjólaleiðir og græn svæði eru grunnforsenda heilsu og vellíðanar. Tryggja þarf að farið sé eftir skipulagi og að reglugerðum við frágang lóða sé framfylgt. Til að standa vörð um öryggi barna og fullorðinna í umferðinni þarf að framfylgja reglum um hæð grindverka við lóðamörk og taka á gróðri sem veldur hættu fyrir gangandi og hjólandi umferð. Viðreisn mun standa fast í fæturna þegar kemur að skipulagmálum og hafna skammtímahugsun sem bitnar á lífsgæðum og öryggi íbúa. Stuðningur sem endurspeglar raunverulegt líf fólks Fjölskyldur eru ólíkar og þjónustan verður að taka mið því. Mikilvægt er að bjóða uppá sveigjanlegar lausnir, faglegan stuðning og hafa þjónustuna sem næst fólkinu. Viðreisn vil auka aðgengi að fjölbreyttri stoðþjónustu inn í skólana og mun setja snemmtæka íhlutun í forgang. Börn eiga að njóta vafans og enginn á að detta á milli kerfa. Fjölskylduvænt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þegar kjörnir fulltrúar þora að forgangsraða, taka ábyrgð og horfa til framtíðar. Við í Viðreisn viljum setja lífsgæði fólks í fyrsta sæti og byggja Árborg af festu, framsýni og sanngirni. Höfundur er nýsköpunarverkfræðingur og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar