Handbolti

Gróttukonur sóttu dýr­mætan sigur í Mýrina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gróttukonur eru einu skrefi nær Olísdeild kvenna eftir flottan sigur í kvöld.
Gróttukonur eru einu skrefi nær Olísdeild kvenna eftir flottan sigur í kvöld. @grotta_handbolti/Eyjólfur Garðarsson

Grótta er komið í 1-0 í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olísdeild kvenna í handbolta næsta vetur eftir tveggja marka sigur á Stjörnunni í Heklu Höllinni í Mýrinni í Garðabæ í kvöld.

Grótta vann leikinn 23-21 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Næsti leikur er á Seltjarnarnesi en þrjá sigra þarf til að tryggja sér farseðilinn upp í Olísdeildina.

Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Gróttu og Andrea Gunnlaugsdóttir varði 17 skot í markinu. Elísabet Ása Einarsdóttir og Katrín Scheving Thorsteinsson skoruðu síðan báðar fjögur mörk.

Vigdís Arna Hjartardóttir var markahæst hjá Stjörnunni með fimm mörk en Eva Björk Davíðsdóttir var með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar.

Stjarnan spilaði í Olísdeildinni í vetur þar sem liðið endaði í næstneðsta sæti en Grótta í Grill 66-deild kvenna þar sem liðið varð í öðru sæti á eftir HK.

Í stöðunni 8-8 náðu Gróttukonur frábærum endakafla fyrir hálfleik. Þær unnu hann 4-1 og leiddu 12-9 eftir fyrri hálfleikinn. Ída Margrét Stefánsdóttir var komin með sex mörk og þrjár stoðsendingar í hálfleik og Andrea Gunnlaugsdóttir varði 53 prósent skotanna (10 af 19) sem komu á hana í hálfleiknum.

Stjörnukonum tókst að jafna metin snemma í seinni hálfleik en þær komust ekki yfir og Gróttuliðið landaði síðan mikilvægum sigri á lokamínútunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×