Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 15. apríl 2026 07:46 Verðbólgan reynist nú erfitt viðfangsefni eins og oft áður í hagsögu okkar Íslendinga. Hún hefur farið hækkandi undanfarna mánuði og horfur eru ekki bjartar. Ríkisstjórnin hefur brugðist við með því að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11%. Í þeim breytingum felst þó ekki aðeins skattalækkun, heldur einnig heimild ráðherra til að kveða á um hámarksverð eða hámarksálagningu á eldsneyti. Stjórnvöld munu því geta stýrt verði á vöru sem seld er á samkeppnismarkaði. Þetta er nýjasta dæmið um viðhorf sem stjórnvöld hafa gefið til kynna með aðgerðum sínum undanfarið: að háa verðbólgu megi fyrst og fremst rekja til hærri álagningar kaupmanna. Þegar verðbólga hækkaði í upphafi árs vegna hækkunar ríkisstjórnarinnar sjálfrar á vörugjöldum á bifreiðar kusu forsætis- og fjármálaráðherra að varpa ábyrgðinni yfir á olíufélögin. Þeim var sagt að „passa sig“ í álagningu, þrátt fyrir að verðlækkun á eldsneyti við upptöku kílómetragjalds hefði rímað við áætlanir fjármálaráðuneytisins. Þetta er varhugaverð þróun. Árangur í baráttu við verðbólgu byggir á samstilltu átaki stjórnvalda, fyrirtækja og launafólks. Stjórnvöld sem stilla kaupmönnum upp sem andstæðingum almennings grafa undan þessu trausti og ala á andúð án haldbærs rökstuðnings. Um leið beina þau athygli frá raunverulegum orsökum hárrar verðbólgu, þar á meðal ákvörðunum stjórnvalda sjálfra. Eftirlitsaðilar eiga að lækka verðbólgu Í mars veitti atvinnuvegaráðherra Samkeppniseftirlitinu viðbótarframlag upp á 30 milljónir króna. Tilgangurinn var aukið eftirlit með samkeppni á dagvörumarkaði og framlagið kynnt sem liður í baráttunni við verðbólgu. Í tilkynningu ráðuneytisins var sérstaklega bent á að dagvöruverð hér á landi væri með því hæsta sem þekkist í Evrópu. Ekki var minnst á að laun hér séu einnig með því hæsta sem gerist, né heldur að flutningskostnaður til Íslands sé hærri en víðast hvar annars staðar. Nýjasta dæmið er loks fyrrnefnd tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti. Henni fylgja heimildir Samkeppniseftirlitsins til að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem „gerast brotleg gegn skyldu til að tryggja að hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis.“ Jafnframt fylgir henni sérstakt 15 m.kr. framlag til Verðlagseftirlits ASÍ. Af þessu má ráða að stjórnvöld telji að aukið eftirlit með verðlagningu fyrirtækja geti dregið úr verðbólgu. Stjórnvöld beina hér eftirlitsstofnun með víðtækar refsiheimildir sérstaklega að fyrirtækjum í einni atvinnugrein. Og þá veita þau einkaaðila opinbert fé til að fylgjast með öðrum einkaaðilum. Hér eru skilaboð stórnvalda þau sömu og áður: verðbólgan er kaupmönnum að kenna. Aftur til fortíðar Þessi tortryggni í garð kaupmanna og viðleitni til að takmarka frelsi þeirra til að verðleggja vörur kallast á við fyrri tíma, þegar íslenska hagkerfið var í viðjum opinbers verðlagseftirlits. Um miðja síðustu öld starfaði opinber verðgæzlustjóri hér á landi. Hans hlutverk var að hafa eftirlit með því að verðlagsákvæðum fjárhagsráðs væri hlýtt, en fjárhagsráð ákvarðaði hámarksverð á hvers konar vörur og verðmæti sem máli skipti um verðlag í landinu. Opinber verðstýring var með tíð og tíma aflögð, ekki bara á Íslandi heldur einnig í flestöllum ríkjum Austur-Evrópu. Ástæðan er að hún skaðar hagsmuni neytenda. Ákvarðanir stjórnvalda um hámarksverð geta leitt til skorts, ef verð er sett undir markaðsverði og fyrirtæki sjá ekki lengur hag sinn í að bjóða upp á vörurnar. Á tímum verðgæzlustjórans var einmitt gripið til víðtækra skammtana á nauðsynjavörum á borð við matvæli og fatnað. Slík inngrip geta einnig leitt til lakari þjónustu og minni samkeppni þegar fyrirtæki þurfa að fækka útsölustöðum eða leggja upp laupana ef hámarksverð gerir þeim ókleift að standa undir kostnaði. Verðstýring drepur einnig niður kraft frumkvöðla sem vilja skapa eitthvað nýtt eða bæta það sem fyrir er með því að leggja hömlur á athafnir fólks. Í stað þess að grípa til mislukkaðs verkfæris ættu stjórnvöld að líta í eigin barm og styðja við lækkun verðbólgu með tiltekt í ríkisrekstrinum. Lækkum verðbólgu til skamms og langs tíma Stjórnvöld hafa öll verkfæri sem þau þurfa til að ná niður verðbólgu í landinu. Til skamms tíma geta þau dregið til baka þá hækkun vörugjalda á bifreiðar sem innleidd var um áramótin. Hækkunin hafði veruleg áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar – áhrif sem verða inni í verðbólgutölum til ársloka. Til lengri tíma ættu stjórnvöld að breyta fyrirkomulagi kjarasamninga hérlendis, færa það nær því sem gerist í nágrannalöndum okkar og taka fyrir launahækkanir opinberra starfsmanna umfram almennan vinnumarkað. Undanfarið ár hafa laun opinberra starfsmanna hækkað um 9,3% samanborið við 6,1% hækkun á almenna markaðnum. Raunar nemur launahækkun fjölmennra hópa opinberra starfsmanna allt að 17% á undanförnum mánuðum. Sterkari lagaumgjörð kjarasamninga myndi stöðva það höfrungahlaup sem jafnan fer af stað á vinnumarkaðnum og koma í veg fyrir verðbólgu eins og þá sem við búum við í dag. Þannig mætti koma í veg fyrir að gamlir draugar á borð við verðgæzlustjóra ríkisins væru vaktir upp — draugar sem eru best geymdir í fortíðinni. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar