Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 14. apríl 2026 12:47 Leikskólinn er ómissandi stofnun. Ég held að um þetta hafi lengi ríkt nokkuð almenn samstaða á Íslandi. Þess vegna er umhugsunarvert að tekjulíkanið sem Alþingi Íslendinga hefur markað sveitarfélögum geri ekki ráð fyrir rekstri leikskóla. Og það sem meira er: Íslendingar eru eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur lögfest réttinn til leikskólavistar. Ungbarnafjölskyldur í öllum stærri sveitarfélögum bera hallann af þessu – ýmist með langri bið eftir plássi, ofurháum leikskólagjöldum eða skítareddingum sem bitna á foreldrum með ósveigjanlegan vinnutíma. Allt eru þetta mismunandi birtingarmyndir sama kerfislæga vandans sem er sá að það sárvantar sameiginlega sýn, lagaumgjörð og samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun leikskólastigsins. Í nýlegri skýrslu aðgerðahóps forsætisráðuneytisins um brúun umönnunarbilsins er þetta gat á mennta- og velferðarkerfinu okkar sýnt með myndrænum hætti: Skýrsla starfshópsins sem Henný Hinz leiddi markar tímamót, en þar hafa fulltrúar verkalýðshreyfingar, kennara, sveitarfélaga og ráðuneyta komið sér saman um tillögur þess efnis að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur, ríki og sveitarfélög hefji viðræður um uppbyggingu, kostnaðarskiptingu og tekjustofna og ráðist verði í markvissa styrkingu leikskólastigsins og eflingu fagstétta á fyrsta skólastiginu. Ég hvet allt áhugafólk um bætta stöðu barna og barnafjölskyldna til að lesa skýrsluna, og ekki síst frambjóðendur til sveitarstjórna. Markmiðin nást ekki í dag Á Norðurlöndunum hefur verið litið svo á að markmið leikskóla sé fyrst og fremst tvíþætt.Annars vegar er leikskólinn grundvallarhlekkur í menntakerfinu og sinnir uppeldi, menntun og velferð barna – sem kallar t.a.m. á góðan aðbúnað barna og starfsfólks og að hlutfall faglærðra leikskólakennara sé hátt.Hins vegar er leikskólinn ómissandi fyrir heilbrigðan vinnumarkað; hann styður við atvinnuþáttöku foreldra og jafnar stöðu kynjanna – en til þess að svo megi verða þurfa börn að komast tiltölulega ung á leikskóla, helst ekki mikið seinna en eftir 12 mánaða aldur.Leikskólar eru svo niðurgreiddir duglega af hinu opinbera alls staðar á Norðurlöndunum, enda taldir til grunnþjónustu sem eigi að standa til boða á viðráðanlegu verði.Það er löngu orðið ljóst að tekjulíkanið sem Alþingi hefur markað sveitarfélögum dugar ekki til þess að ná þessum ofangreindu markmiðum öllum í senn: að leikskólar séu sterkar menntastofnanir, að starfsaðstæður séu eins og best verður á kosið, að börnum sé tryggð leikskólavist fljótlega eftir að fæðingarorlofi foreldra lýkur og að leikskólagjöldum sé haldið hóflegum.Því fyrr sem stjórnmálamenn viðurkenna þetta, bæði þeir sem starfa á sveitarstjórnarstiginu og í landsmálunum, því betra.Frændþjóðirnar geta þetta og við líkaÍ Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Grænlandi og á Álandseyjum er réttur barna til leikskólagöngu tryggður með lögum og mælt fyrir um skyldu sveitarfélaga til að útvega leikskólavist eða aðra umönnun eftir að fæðingarorlofi lýkur. Það er svo sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að láta dæmið ganga upp.Ef frændþjóðir okkar geta gert þetta þá getum við það líka. En það er fullreynt að sveitarfélögin basli við það hvert í sínu horni. Við þurfum samfélagssáttmála um að setja leikskólann á þann stall sem hann á skilið.Skýrsla aðgerðahóps forsætisráðuneytisins og pólitískt frumkvæði Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar í þessum efnum er góð byrjun, og komandi sveitarstjórnarkosningar eru tilefni til að taka þetta samtal lengra. Stefna Samfylkingar er skýr en þeir stjórnmálaflokkar sem vilja að Ísland skeri sig áfram rækilega frá þeirri fjölskyldupólitík sem er rekin á Norðurlöndunum þurfa að útskýra fyrir kjósendum hvers vegna.Höfundur er ráðherra í fæðingarorlofi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar