Lágflugið vekur athygli erlendis Agnar Már Másson skrifar 12. apríl 2026 18:43 Atvikið hefur ratað í flugfjölmiðla víða en auk þess hafa ísraelskir og pólskir miðlar greint frá. Vísir Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum í gær hefur vakið athygli um víða veröld. Fjöldi erlendra miðla hefur greint frá atvikinu.
Flugmenn Icelandair fóru í lágflug yfir Vestmannaeyjar í gær í leyfisleysi. Flugstjórinn er ættaður af svæðinu og var að fara sitt seinasta flug áður en hann lætur af störfum vegna aldurs. Flugstjórinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband við hann fyrr í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Icelandair tilkynnt málið til lögreglu. Þá hefur það verið í samskiptum við Samgöngustofu vegna málsins. Grunur er um að flugstjórinn hafi farið niður fyrir leyfilegar hæðartakmarkanir. Atvikið hefur enn fremur vakið mikla athygli í flugheiminum. Flugmiðillinn Airlive.net greinir frá því að vélin hafi samkvæmt flugkortagögnum verið í um 100 metra hæð, en almenn megi að lágmarki vera í 300 metra hæð yfir byggð. Ísraelska dagblaðið Israel Hayom segir einnig frá atvikinu með vísan í íslenska miðla og segir að flugmaðurinn hafi „skotist heim“ til sín á sínu síðasta atvinnuflugi. Pólski miðillinn Interia orðar það svo að flugmaðurinn hafi flogið vélinni nánast í jarðhæð. „Við biðjum íbúa Vestmannaeyja velvirðingar ef þeir hafa orðið fyrir ónæði,“ sagði Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, í gær.
Icelandair Fréttir af flugi Vestmannaeyjar Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira