Körfubolti

Hamar/Þór með stór­sigur í fyrsta úr­slita­leiknum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jadakiss Guinn spilaði stórkostlega í kvöld.
Jadakiss Guinn spilaði stórkostlega í kvöld. vísir/Anton

Hamar/Þór vann 107-83 stórsigur gegn Fjölni og leiðir 1-0 í úrslitaeinvíginu upp á sæti í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Hamar/Þór berst fyrir því að halda sínu sæti í deildinni en Fjölnir reynir að komast upp úr fyrstu deildinni. Einvígið verður hins vegar stutt ef Fjölniskonur gera ekki betur en í kvöld.

Hamar/Þór var með öll tök á þessum leik og sleit sig alveg laust frá gestunum í seinni hálfleik.

Jadakiss Nashi Guinn átti stórleik fyrir Hamar/Þór og skoraði 44 stig, auk þess að grípa 11 fráköst og gefa 7 stoðsendingar.

Þrjá sigra þarf til að vinna einvígið og liðin mætast í öðrum leik næsta þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×