Upp­gjörið: Ís­land - Portúgal 32-24| Ís­land er á leiðinni á EM

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
island
Vilhelm Gunnarsson

Ísland er á leiðinni á EM eftir átta marka sigur á Portúgal á Ásvöllum í dag. Ísland var fjórum mörkum undir í byrjun leiks en með einstökum viðsnúningi snéri liðið leiknum sér í vil.

Íslenska liðið byrjaði leikinn hræðilega og var komið fjórum mörkum undir eftir um átta mínútna leik. Arnar Pétursson tók þá leikhlé og hægt og rólega tókst liðinu að minnka bilið.

Síðustu sex mínútur hálfleiksins tókst Portúgal ekki að skora á meðan Ísland bætti við fimm mörkum í röð og tókst að komast þremur mörkum yfir. Þá fékk Mihaela Minciuna beint rautt spjald eftir brot á Elínu Klöru Þorkelsdóttur. 15-12 fyrir Íslandi og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Beint rautt eftir brot á Elínu Klöru.Vilhelm Gunnarsson

Það var svo enn frekari innspýting hjá íslenska liðinu í síðari hálfleik þar sem það gekk næstum því allt upp. Hægt og bítandi var Ísland komið með fimm marka forystu og hélt áfram að breikka bilið.

Þegar um tíu mínútur voru eftir af seinni hálfleik var liðið komið með tíu marka forystu og nokkuð ljóst að stelpurnar myndu sigla sigrinum heim. Leikurinn sem byrjaði með afhroði endaði einstaklega vel með frábærum frammistöðum leikmanna Íslands.

Lokastaða 32-24 og Ísland á leiðinni á EM.

Tilfinningin að vera á leiðinni á EM.Vilhelm Gunnarsson

Atvik leiksins

Viðsnúningur Íslands eftir fyrsta leikhléð hjá Arnari. Þá rauk liðið í gang og fórum við að sjá alvöru frammistöðu hjá liðinu.

Stjörnur og skúrkar

Hafdís Renötudóttir var með sýningu í markinu með 46% vörslu.

Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst með sjö mörk og fjórar stoðsendingar. Elín Rósa kom þar næst með sex mörk og sex stoðsendingar.

Elín Klara kann vel við sig á Ásvöllum.Vilhelm Gunnarsson

Stemning og umgjörð

Troðfull höllin á Ásvöllum á fullt af handboltastelpum sem fengu áritaðar myndir að leik loknum. Verð að hrósa stemningunni og umgjörðinni í kringum þennan leik. Virkilega mikilvægt að fá þessa umgjörð fyrir yngri kynslóðina.

Elín Klara áritar myndir fyrir stuðningsmenn.Vilhelm Gunnarsson

Dómarar

Dómaratvíeykið kom alla leið frá Króatíu og stóð sig með prýði. Ekkert út á dómgæsluna að setja og svo sem lítið sem ekkert um vafaatriði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira