Upp­gjörið: Fær­eyjar - Ís­land 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórs­höfn

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Elín Klara fann sig ekki í dag.
Elín Klara fann sig ekki í dag. Alex Gottschalk/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði gegn Færeyjum 35-30 í undankeppni HM í kvöld.

Íslenska liðið byrjaði leikinn af krafti og um miðbik fyrri hálfleiks leiddi liðið með tveimur mörkum. Færeyjar komu þá sterkar til baka og skoruðu fjögur mörk í röð.

Færeyjar leiddu þá með tveimur mörkum eftir sterkan lokakafla fyrri hálfleiks, 14-12 og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Heimakonur tóku öll völd í seinni hálfleik og juku forskot sitt jafnt og þétt.

Sóknarleikur Íslands hrundi með mörgum töpuðum boltum og erfiðum sóknum. Færeyjingar refsuðu með hraðaupphlaupum og góðri sókn á meðan vörn Íslands var eins og gat á sigti.

Þegar mest á reyndi munaði átta mörkum á liðunum og íslenska liðið með engin svör. Færeyjar kláruðu svo leikinn af öryggi með fimm marka mun, 35-30.

Íslenska liðið er í erfiðri stöðu og þarf að treysta því að Svartfjallaland sigri Portúgal á morgun. Ísland því enn á botni riðilsins með tvö stig.

Atvik leiksins

Ekkert sérstakt atvik en maður beið alltaf eftir því að stelpurnar myndu hrökkva í gang en í staðinn hrundi sóknar- og varnarleikurinn.

Stjörnur og skúrkar

Pernille Brandenborg var frábær í liði Færeyja með ellefu mörk. Jana Mittún kom þar næst á eftir með sjö mörk.

Sandra Erlingsdóttir spilaði lítið en skoraði úr sex af sjö vítum og var markahæst hjá íslenska liðinu.

Stemning og umgjörð

Það virtist vera mögnuð stemning í höllinni í Færeyjum. Víkingaklappið var tekið reglulega til þess að strá salti í sárin.

Dómarar

Franskt dómaratvíeyki í kvöld og ekkert hægt að setja út á dómgæsluna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira