Umræðan

Stað­reyndir um banka­skatt

Benedikt Gíslason skrifar

Nú stendur til að hækka skatta á fjármálafyrirtæki um 6 milljarða króna. Í umfjöllun um málið hefur því verið haldið fram að þegar bankaskattur var lækkaður úr 0,376 prósentum í 0,145 prósent hafi vaxtamunur ekki færst neitt til og bankarnir stungið ávinningnum af 12 milljarða skattalækkun í vasann. Þetta er eins rangt og það getur orðið.

Lækkun bankaskatts hefur skilað sér í minni vaxtamun til einstaklinga, þökk sé öflugri samkeppni og miklum hreyfanleika á markaði með óbundin innlán og óverðtryggð íbúðalán. Seðlabankinn benti á það í riti sínu Peningamálum í ágúst 2023 að vaxtaálag á ný óverðtryggð íbúðalán miðað við innlánsvexti hefði ekki verið lægra í þeirra gögnum, sem ná aftur til ársins 2015. Þessi vaxtamunur var að meðaltali 3,2% frá 2015 til 2023 (bankaskattur var þá 0,376%), en hafði lækkað niður fyrir 2% í ágúst 2023 og hefur haldist á þeim slóðum síðan. Kannanir sýna að Íslendingar eru duglegri en aðrar Evrópuþjóðir að sækja í bestu kjör með því að færa inn- og íbúðalán sín milli fjármálafyrirtækja en 21% aðspurðra hér á landi höfðu skipt um þjónustuaðila sparnaðarinnlána síðastliðin 5 ár í könnun Gallup og 17% höfðu hreyft íbúðalánið sitt.

Það er erfitt að sjá rökin fyrir þessari séríslensku nálgun og kannski rétt að minnast orða Ronald Reagan: „Þú getur ekki skattlagt fyrirtæki. Fyrirtæki borga ekki skatta. Þau innheimta skatta."

Skattar á fjármálafyrirtæki hér á landi eru þegar tvisvar til þrisvar sinnum hærri en á Norðurlöndunum og í öðrum Evrópuríkjum vegna sértækra skatta. Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, sem gefin var út árið 2018, kom fram að starfsumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja kynni að valda álagi á útlánavexti – svokölluðu Íslandsálagi – sem síðar var reiknað út að næmi um einu prósentustigi. Fyrirhuguð hækkun upp á 6 milljarða króna eykur þetta álag. Það er erfitt að sjá rökin fyrir þessari séríslensku nálgun og kannski rétt að minnast orða Ronald Reagan: „Þú getur ekki skattlagt fyrirtæki. Fyrirtæki borga ekki skatta. Þau innheimta skatta."

Í næstu grein mun ég fjalla um hvaða kerfisbreytingar við getum farið í til að tryggja ungu fólki hagstæðari vexti á íbúðalán sín, til viðbótar við að lækka þessi himinháu gjöld og álögur á fjármálafyrirtæki í stað þess að hækka þau.

Höfundur er bankastjóri Arion banka.


Tengdar fréttir

Stjórn­endur Arion segja „hamlandi starfs­um­hverfi“ kalla á meiri vaxta­mun

Æðstu stjórnendur Arion gagnrýndu „hamlandi starfsumhverfi“ hér á landi á aðalfundi bankans í gær, sem þýddi að vaxtamunur þyrfti að vera hærri en ella til að ná fram sambærilegri arðsemi og erlendir keppinautar þeirra, og kölluðu eftir því að stjórnvöld myndu „jafna leikinn.“ Íslenskir bankar greiddu í fyrra um 70 til 80 prósent meira í heildarskatta borið saman við aðra norræna banka, að sögn bankastjóra Arion.




Umræðan

Sjá meira


×