Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2026 14:39 Gestir Keflavíkurflugvallar eru hvattir til þess að mæta snemma í flug enda mikil umferð á vellinum. Vísir/Vilhelm Frá og með deginum í dag og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum í almennum stæðum, á P3, við Keflavíkurflugvöll ef búið er að bóka stæði fyrir fram. Ekki er hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Þar segir að búist sé við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska og fyrirsjáanlegt sé að bílastæði flugvallarins verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðarnar. „Gestir Keflavíkurflugvallar eru hvattir til þess að mæta snemma í flug og þau sem koma á bíl að bóka stæði fyrir fram. Samgöngur til KEF og hvernig á að bóka bílastæði Til að tryggja sér bílastæði við Keflavíkurflugvöll um páskana þarf að bóka stæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar. Einnig er vakin athygli á öðrum samgöngumátum til og frá flugvellinum. Þar má nefna flugrútuna, strætisvagna og leigubíla. Hér má finna kort af bílstæðum við KEF og upplýsingar um staðsetningu á samgönguþjónustu við flugstöðina. Þarf að skutla eða sækja á KEF? Gestum sem er skutlað í flug er bent á svokallaða rennu við brottfararinngang. Þar er hægt að stöðva bíla í stutta stund til að hleypa út farþegum, losa farangur og ganga beint inn. Til þess að tryggja gott flæði og aðgengi allra að rennunni hvetjum við fólk til að stoppa ekki lengur en þörf er á. Gjaldfrjálst er að stoppa í rennunni í 5 mínútur. Fyrir lengri tíma er bent á að hægt er að leggja á P1 bílastæðum brottfarar megin gjaldfrjálst í 15 mínútur og á P2 bílastæðunum komu megin í 30 mínútur,“ segir í tilkynningunni.
Keflavíkurflugvöllur Bílastæði Ferðalög Páskar Neytendur Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent