Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Árni Sæberg skrifar 26. mars 2026 11:27 Halla er formaður VR. Vísir/Vilhelm Formaður VR telur að innleiða verði einhvers konar verðþak á olíu í ljósi hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og verðhækkana á dælum hérlendis sem fylgja.
Hagstofan birti verðbólgutölur marsmánaðar í morgun og þar má sjá að verðbólga jókst úr 5,2 prósentum í 5,4 prósent milli mánaða. Verð á bensíni hækkaði um 5,8 prósent og hafði 0,10 prósenta áhrif á vísitölu neusluverðs til hækkunar og verð á dísel hækkaði um 6,9 prósent og hafði 0,05 prósenta áhrif til hækkunar. „Ný mæling á vísitölu bendir til þess að olíufyrirtækin séu byrjuð að stunda forvirkar hækkanir; þau skila heimsmarkaðsverðhækkunum löngu áður en olíutunnurnar geta náð landi. Það er ekki hægt að bíða með að allar þessar hækkanir skelli á okkur, það verður að innleiða einhvers konar verðþak á olíu,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook í tilefni af tíðindum morgunsins. Ekki fyrst til að gagnrýna olíufélögin Halla er síður en svo sú fyrsta til að gagnrýna verðhækkanir olíufélaganna frá því að heimsmarkaðsverð fór að hækka í kjölfar átaka sem nú geisa í Persaflóa. Það hafa til að mynda Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Dagur B. Eggertsson þingmaður gert. Magnús Hafliðason, forstjóri N1, svaraði þeirri gagnrýni á dögunum. Hann sagði meðal annars að verð á olíu hérlendis réðist alfarið af heimsmarkaðsverði og ekki skipti máli hvaðan olían kemur. Mestöll olía sem seld er hér er norsk og í Noregi geisa engin stríð sem hafa áhrif á olíuverð. „Spurt hefur verið hvers vegna norsk olía hækki þótt hún komi ekki frá Miðausturlöndum. Ástæðan er einföld: Olíumarkaðurinn er alþjóðlegur. Framleiðendur bjóða olíu sína á heimsmarkaði og verðið mótast þar, en ekki eftir landsvæðum. Framboð á einu landsvæði hefur því áhrif á verð annars staðar. Ef framboð minnkar til dæmis frá Miðausturlöndum er líklegt að eftirspurn eftir norskri olíu aukist. Þar með hækkar líka verð á olíu sem seld er til Íslands því verðið er beintengt við heimsmarkaðsverð olíu á hverjum tíma.“ Engar skýringar fengið á hækkun matvöruverðs Þá segir Halla einnig í pistli sínum á Facebook að það sé sláandi að matvara haldi áfram að hækka í verði milli mánaða. Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,7 prósent á milli mánaða og hafði 0,11 prósenta áhrif á vísitöluna til hækkunar. „Við höfum aldrei fengið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna matvara hefur þurft að hækka mánuð eftir mánuð yfir langt tímabil.“ Hægt að grípa til aðgerða Halla segir þó að góðu fréttirnar séu þær að hækkunin nú sé ekki á jafnbreiðum grunni og síðast og að hægt sá að grípa til aðgerða til að takmarka skaðann. „Hér verður að taka á því sem við ráðum við sjálf og stöðva verðhækkanir og afturkalla gjaldskrárhækkanir. Bankarnir og stóru fyrirtækin, sem hafa verðmótandi áhrif, eiga að draga úr arðsemiskröfum sínum tímabundið. Þetta, ásamt því að stjórnvöld láti af atlögu sinni gegn réttindum vinnandi fólks og keyri á umbætur í húsnæðismálum, getur skapað fyrirsjáanleika fyrir fólk og fyrirtæki, að því marki sem hann er mögulegur í alþjóðlegu umróti, og þannig haft jákvæð áhrif inn í haustið þegar forsendur kjarasamninga bresta.“ Loks segir hún að á fjölsóttum aðalfundi VR í gærkvöldi hafi ályktun verið samþykkt, sem taki á þessum þáttum og leggi línurnar fyrir lausnamiðaða nálgun í erfiðri stöðu. „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd við þessar aðstæður.“
Verðlag Bensín og olía Efnahagsmál Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira