Vaxtahækkun í maí blasi við Birgir Olgeirsson skrifar 26. mars 2026 10:42 Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir allt útlit fyrir hækkun stýrivaxta í maí miðað við hvernig staðan þróast vegna hækkunar eldsneytisverðs og hvað fulltrúar peningastefnunefndar sögðu á síðasta fundi. Vísir/Vilhelm Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra.
Verðbólga mældist 5,4 prósent í mars, sem er hækkun frá því í febrúar þegar hún mældist 5,2 prósent. Verðbólgan er þó undir spám Íslandsbanka og Arion banka sem höfðu spáð 5,5 prósenta verðbólgu. Landsbankinn hafði spáð 5,4 prósenta verðbólgu. „Það er hins vegar talsverð óvissa þegar horft er til næstu mánaða. Eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega undanfarið vegna átakanna í Íran og þær hækkanir hafa ekki enn skilað sér af fullum þunga til okkar,“ segir Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka. Olíuverðið hefur sveiflast mikið undanfarnar vikur. Tunnan af Norður-Atlantshafsolíunni Brent hefur hækkað um 40% á meðan Hagstofan mældi eldsneytishækkun á Íslandi í mars um sex prósent. Ef heimsmarkaðsverðið fer ekki að lækka má búast við hækkunum á eldsneytisverði hér á landi á næstu mánuðum. Ruðningsáhrifin af slíkri hækkun geta verið talsverð þar sem flestallar vörur eru annaðhvort framleiddar eða fluttar með olíu „Auðvitað hefur maður vonað að þessar olíuverðshækkanir myndu ganga til baka en eftir því sem þetta ástand ágerist þá verður maður alltaf svartsýnni,“ segir Bergþóra. Staða Seðlabankans snúin Þetta setji Seðlabanka Íslands í ansi snúna stöðu. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 í síðustu viku og er bankinn í ákveðnu kapphlaupi við tímann við að lækka verðbólgu. Eins og sakir standa eru nokkrar líkur á að forsenduákvæði kjarasamninga bresti. Verðbólga verður að vera 4,7 prósent eða lægri í september svo forsenduákvæðið haldi. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri. Seðlabankans bíður ærlegt verkefni að reyna að lækka verðbólgu fyrir september svo forsenduákvæði kjarasamninga haldi. Vísir/Vilhelm „Miðað við hvað var sagt við síðustu stýrivaxtaákvörðun þá er ansi líklegt að vextir verði hækkaðir í maí. Ef tekið er tillit til þess hvað kom fram í máli nefndarmanna peningastefnunefndarinnar þá voru tveir sem vildu hækka stýrivexti um 0,5 en niðurstaðan var 0,25. Það hefur ekki gerst síðan í Covid að nefndarmenn séu svona ósammála. Verðbólguvæntingar eru enn talsvert háar og vel yfir markmiði og líkur á að það verði stigið fast á brestuna til að ná þeim niður. Það gæti því orðið meiri skellur fyrir hagkerfið en peningastefnunefndin þarf að ná verðbólgu niður í markmið og auka trúverðugleika sinn. Við höfum verið yfir verðbólgumarkmiði í ansi langan tíma, eða sex ár,“ segir Bergþóra. Húsnæðisliðurinn hækki minna en í fyrra Hún segir þó að greiningardeildir búist við að verðbólgan hjaðni á næstu mánuðum og verði 4,6 prósent í júní. Þar skipti tólf mánaða takturinn í verðbólgumælingum og hvaða mánuður dettur út úr þeirri mælingu frá fyrra ári. „Við erum að sjá minni hækkun á húsnæðisliðnum en í fyrra, það er að segja hækkun fasteignaverðs og leiguverðs, og það munar talsvert um það. Þá hefur matvöruverð ekki hækkað jafn skart og í fyrra. Það gefur okkur ákveðna von horfandi á næstu mánuði en eins og fyrr segir, þá er talsverð óvissa vegna hækkunar eldsneytisverðs.“
Íslandsbanki Efnahagsmál Seðlabankinn Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira