Heimilin og orkuskiptin í forgang á raforkumarkaði Dagný Halldórsdóttir og Tryggvi Felixson skrifa 24. mars 2026 10:00 Eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku er sífellt að aukast og án skilvirkrar lagasetningar er ekkert því til fyrirstöðu að heimilin í landinu verði hreinlega undir í samkeppninni um raforku bjóði stórkaupendur betur. Þá kann einnig að koma upp sú staða að lítil sem engin raforka verði til staðar fyrir nauðsynlega útfösun á bensíni og olíu í samgöngum á landi, og síðar á sjó og í lofti. Ákvæði um forgang í þágu orkuskipta og orkuöryggis almennings verður að festa í lög. Orkuþörf heimila á Íslandi og minni orkunotenda er samanlagt um 20% raforkunnar, orkuskiptin þá meðtalin. Megnið af orkuframleiðslunni, eða rétt um 80%, fer til stórnotenda samkvæmt nýlegri orkuspá. Í núgildandi lögum er ekkert sem hamlar því að raforku sem framleidd er hér á landi verði varið til stórnotenda. Það er algjörlega óásættanlegt að setja heimilin á landinu í beina samkeppni við stór og öflug fyrirtæki sem með langtímasamningum geta tryggt sína raforkuþörf áður en grundvallarþörfum fyrir raforku í samfélaginu á viðráðanlegu verði er mætt. Við því þarf Alþingi að bregðast með lagasetningu. Þá verður Alþingi, með lagabreytingum, að koma í veg fyrir ástand þar sem raforkuframleiðsla leiði til frekari losunar gróðurhúsalofttegunda. Eftirspurn stærri notenda og stórnotenda eftir endurnýjanlegri orku er því sem næst óendaleg, aftur á móti er virkjanakostum takmörk sett auk þess sem huga þarf að verndun landslags, víðerna og nattúru Íslands. Tryggja þarf að við nýtingu orkulinda landsins verði alltaf fyrir hendi raforka fyrir heimilin, minni orkunotendum og fyrir orkuskiptin. ALDIN styður þingsályktunartillögu um orkuöryggi til almennings (72. mál, 157. löggjafarþing 2025–2026) sem gekk til atvinnuveganefndar 5.3.2026 og er nú til umsagnar. Félagið ALDIN gegn loftslagsvá hefur ítrekað fjallað um þessa afleitu stöðu orkumála á fundum sínum. Nýlega samþykkti félagið að skorar á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja strax fram frumvarp á Alþingi um forgang orkuskipta og orkuöryggis almennings við framleiðslu raforku hér á landi. Félagið ALDIN bíður eftir svari stjórnvalda við því ákalli. Höfundar sitja í stjórn félagsins Aldin gegn loftslagsvá og í vinnuhópi félagsins um orkuskipti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tryggvi Felixson Orkumál Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku er sífellt að aukast og án skilvirkrar lagasetningar er ekkert því til fyrirstöðu að heimilin í landinu verði hreinlega undir í samkeppninni um raforku bjóði stórkaupendur betur. Þá kann einnig að koma upp sú staða að lítil sem engin raforka verði til staðar fyrir nauðsynlega útfösun á bensíni og olíu í samgöngum á landi, og síðar á sjó og í lofti. Ákvæði um forgang í þágu orkuskipta og orkuöryggis almennings verður að festa í lög. Orkuþörf heimila á Íslandi og minni orkunotenda er samanlagt um 20% raforkunnar, orkuskiptin þá meðtalin. Megnið af orkuframleiðslunni, eða rétt um 80%, fer til stórnotenda samkvæmt nýlegri orkuspá. Í núgildandi lögum er ekkert sem hamlar því að raforku sem framleidd er hér á landi verði varið til stórnotenda. Það er algjörlega óásættanlegt að setja heimilin á landinu í beina samkeppni við stór og öflug fyrirtæki sem með langtímasamningum geta tryggt sína raforkuþörf áður en grundvallarþörfum fyrir raforku í samfélaginu á viðráðanlegu verði er mætt. Við því þarf Alþingi að bregðast með lagasetningu. Þá verður Alþingi, með lagabreytingum, að koma í veg fyrir ástand þar sem raforkuframleiðsla leiði til frekari losunar gróðurhúsalofttegunda. Eftirspurn stærri notenda og stórnotenda eftir endurnýjanlegri orku er því sem næst óendaleg, aftur á móti er virkjanakostum takmörk sett auk þess sem huga þarf að verndun landslags, víðerna og nattúru Íslands. Tryggja þarf að við nýtingu orkulinda landsins verði alltaf fyrir hendi raforka fyrir heimilin, minni orkunotendum og fyrir orkuskiptin. ALDIN styður þingsályktunartillögu um orkuöryggi til almennings (72. mál, 157. löggjafarþing 2025–2026) sem gekk til atvinnuveganefndar 5.3.2026 og er nú til umsagnar. Félagið ALDIN gegn loftslagsvá hefur ítrekað fjallað um þessa afleitu stöðu orkumála á fundum sínum. Nýlega samþykkti félagið að skorar á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja strax fram frumvarp á Alþingi um forgang orkuskipta og orkuöryggis almennings við framleiðslu raforku hér á landi. Félagið ALDIN bíður eftir svari stjórnvalda við því ákalli. Höfundar sitja í stjórn félagsins Aldin gegn loftslagsvá og í vinnuhópi félagsins um orkuskipti.
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar