Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Magnús S. Guðmundsson skrifar 19. mars 2026 20:59 vísir/Hulda Margrét Þór Þorlákshöfn rúllaði í kvöld yfir Njarðvíkinga í fjörugum leik í Bónus-deild karla í körfubolta. Þórsarar voru fyrir leikinn að spóla í fallbaráttufeninu og þurftu á þessum sigri að halda til þess að eiga von um að halda sæti sínu í deildinni. Lokatölur 109-72. Þórsarar hafa dansað við fallbaráttudrauginn í allan veturinn en eftir tap gegn Ármenningum í síðustu umferð varð dansinn enn torsóttari. Vegna innbyrðis viðureigna höfðu liðin sætaskipti og sátu Þórsarar því í fallsæti fyrir leikinn. Þeim dugir því ekki lengur að vinna sína leiki; þeir þurfa einnig að treysta á að lukkudísirnar verði þeim hliðhollar og að Ármann misstígi sig. Njarðvíkingar hafa hins vegar verið á uppleið undanfarnar vikur og mættu til leiks í kvöld með tvo sigurleiki í farteskinu. Í síðustu umferð rúlluðu þeir yfir Valsara og sýndu þar sannfærandi gæði. Liðsheildin var sterk og áttu Veigar Páll Alexandersson, Sven Smajlagic, Dwayne Lautier-Ogunleye og Dominykas Milka allir frábæran leik. Þeir skoruðu hver um sig í kringum tuttugu stig og boltinn gekk lipurlega á milli leikmanna. Þórsura beið því krefjandi verkefni. Fyrsti leikhluti fór vel af stað hjá Þórsurum. Þeir hentu sér á alla bolta og höfðu betur í slagsmálunum undir körfunni. Þeir lögðu mikið kapp á að loka á Dominykas Milka og voru með tvo menn í grímunni á honum strax í upphafi. Eins reyndu þeir að loka á skotin hjá Dwayne Lautier og það gekk upp. Lazar Lugic var grimmur hjá Þórsurum og setti niður snyrtilegar körfur. Þórsarar leiddu með níu stigum eftir fyrsta leikhlutann. Annar leikhluti fór vel af stað. Njarðvíkingar þjöppuðu sér saman og Dwayne Lautier náði að slíta sig betur frá varnarmönnum Þórs og komast í góð skot. Heimamenn héldu þó áfram að bíta frá sér og Djordje Dzeletovic fór fyrir sóknarleik þeirra. Dachon Burke var ekki jafn skotglaður og fyrir viku og það hafði góð áhrif á aðra í sókninni. Lautier og Milka héldu áfram að bera af hjá Njarðvíkingum. Staðan í hálfleik var 51-43, Þórsurum í vil. Djorde Dzeletovic var besti leikmaður fyrri hálfleiksins og var kominn með 15 stig þegar flautað var til hálfleiks. Seinni hálfleikurinn fór fjörlega af stað. Njarðvíkingar sóttu í sig veðrið og komu beittari til leiks út úr hléinu. Dwayne Lautier hélt áfram að taka mikið pláss en Þórsarar voru með Milka á lás undir körfunni. Njarðvíkingar minnkuðu muninn í sjö stig við upphaf þriðja leikhluta og virtust ætla að vinna sig inn í leikinn. Þórsarar voru ekki sammála og settu í fluggírinn. Lazar Lugic og Djorde Dzeletovic voru hungraðir í sókninni og Burke hélt ró sinni í skotgleðinni. Þórsarar leiddu með fimmtán stigum við upphaf síðasta leikhluta. Þeir voru þó hvergi hættir. Ákefðin hjá þeim var meiri og við það var eins og Njarðvíkingar yrðu litlir hræddir strákar. Skotin duttu niður hjá Þórsurum og vörnin hélt. Munurinn á milli liðanna jókst með hverri mínútunni og dropinn holaði steininn. Þórsarar unnu leikinn 109-72 og eiga enn von á að halda sér uppi í deild þeirra bestu. Þeir verða þó að treysta á ÍA á móti Ármenningum og vinna Grindvíkinga í lokaumferð tímabilsins. Það er enn tölfræðilegur möguleiki en staðan er þó enn ansi strembin. Atvik leiksins Fjórði leikhlutinn var atvik leiksins. Allt gekk upp hjá Þórsurum og þeir léku eins og vel smurð vél. Keppnisskapurinn í Djorde smitaðist út frá sér til annarra leikmanna. Stjörnur og skúrkar Lazar Lugic og Djorde Dzeletovic voru stjörnur leiksins. Sá síðarnefndi setti niður 26 stig og var um tíma allt í öllu hjá Þórsurum. Lazar setti niður 24 stig. Hjá Njarðvíkingum var skein Dwayne Lautier skærast. Skúrkur kvöldsins var Luwane Pipkins. Hann sást ekki hjá Njarðvíkingum og var í feluleik allan leikinn. Dómararnir Dómarar í kvöld voru Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson. Tríóið fékk að heyra það úr stúkunni og frá varamannabekk Njarðvíkur. Spennan var mikil og tríóið réð ekki við flæðið á köflum. Stemmning og umgjörð Þorlákshafnarbúar blésu í herlúðra í síðustu umferð og buðu upp á ljósashow fyrir leik og smekkfulla stúku. Það skilaði ekki sigri inni á vellinum og því var sleppt slíku prjáli í kvöld. Stúkan var þó full sem fyrr og stemmningin góð. Njarðvíkingar fjölmenntu á pallana og stuðið var mikið. Bónus-deild karla UMF Njarðvík Þór Þorlákshöfn