„Óvægið“ að vitna í lög? Helga Jónsdóttir skrifar 19. mars 2026 13:32 Oddviti Framsóknar í Kópavogi hreykir sér í grein á Vísi af aðgerðum meirihlutans í menningarmálum og segir að uppstokkun á rekstri menningarhúsa í miðbæ Kópavogs hafi tekist afar vel. Hann telur jafnframt að gagnrýni minnihlutans á gerræðisleg vinnubrögð bæjarstjóra hafi verið óvægin og ekki elst vel. Ég er ósammála. Ágreiningurinn snerist nefnilega um það hvernig staðið var að undirbúningi, upplýsingagjöf og aðkomu kjörinna fulltrúa. Í mars 2023 kynnti bæjarstjóri bæjarráði úttekt KPMG á menningarmálum. Þá kom í ljós að samið hafði verið við fyrirtækið í nóvember 2022 án þess að bæjarráð hefði vitneskju um það. Verkefnið fólst í að rýna rekstur og fyrirkomulag menningarmála með það að markmiði að auka skilvirkni, finna hagræðingartækifæri og draga úr umfangi rekstrar, meðal annars með útvistun verkefna. Bæjarráð kom af fjöllum. Málið hafði ekki áður verið rætt á þeim vettvangi, þótt ráðið fari með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarins. Þegar umsagnir forstöðumanna menningarstofnana lágu fyrir kom auk þess í ljós að úttektin einkenndist á köflum af þekkingarleysi og misskilningi. Þrátt fyrir það keyrði meirihlutinn tillögur bæjarstjóra áfram í lista og menningarráði og síðar í bæjarráði í andstöðu við alla fulltrúa minnihlutans. Þetta var kjarni gagnrýni minnihlutans. Hún fólst ekki í einhverri geðþóttaandstöðu, heldur í því að minna á mikilvægustu skyldur kjörinna fulltrúa. Bæjarfulltrúum ber samkvæmt lögum að gegna störfum sínum af alúð og samviskusemi, kynna sér mál og gæta hagsmuna íbúa. Til þess þurfa þeir að hafa tækifæri til að vinna starf sitt. Bæjarstjóri er ráðinn framkvæmdastjóri sveitarfélagsins; allra bæjarbúa og allrar bæjarstjórnar. Hann má ekki halda neinu sem að því hlutverki lýtur frá bæjarráði. Bæjarstjóra ber að tryggja að mál sem lögð eru fyrir bæjarstjórn og nefndir séu vel undirbúin og nægilega upplýst. Það er ekki formsatriði. Það er forsenda þess að kjörnir fulltrúar geti tekið upplýstar ákvarðanir. Með því að undirbúa mál vel á bæjarstjóri að tryggja gott starfsumhverfi kjörinna fulltrúa og góða nýtingu krafta þeirra. Finnist formanni bæjarráðs óvægið að vitna beint í lög í umræðu um mál sem lögð eru fyrir ráðið til afgreiðslu, sýnir það að hann hefur borið af leið. Ég batt um tíma vonir við að formaðurinn, öfugt við bæjarstjórann, myndi standa vörð um réttindi bæjarráðsins. Sjá til þess að mál sem bæjarráð þarf að afgreiða væru vel undirbúin, rökstudd og gætt væri lagaskilyrða. Sú von hefur dvínað eftir því sem liðið hefur á kjörtímabilið. Ítrekað neitar meirihlutinn beiðni um frest til að afla upplýsinga og kynna sér mál. Það er alvarlegt. Mér finnst sárt að geta ekki nýtt atkvæðisrétt minn. Of oft stend ég frammi fyrir því að sitja hjá eða greiða atkvæði gegn tillögum vegna þess að málin eru svo illa undirbúin að ég hef ekki forsendur til að taka upplýsta ákvörðun. Varðandi uppstokkun á rekstri menningarstofnana Kópavogsbæjar vil ég síst gera lítið úr því að margt hefur lánast vel. Það má fyrst og fremst þakka færu og farsælu starfsfólki og stjórnendum sem staðið hafa vaktina lengur en núverandi bæjarstjórn. Framganga bæjarins gagnvart þeim starfsmönnum sem látnir voru víkja í þessum breytingum fannst mér hins vegar gerræðisleg og ekki það sem ég vil að Kópavogur standi fyrir. Bæjarráð hefur aldrei verið upplýst um heildarkostnaðinn við þessar breytingar. Þar á meðal er kostnaður vegna starfsloka allra sérfræðinga Náttúrufræðistofu og lokunar starfsemi hennar. Tvisvar þurfti að ráða nýjan forstöðumann að Salnum með tilheyrandi þjónustu ráðningarstofu. Héraðsskjalasafn á að leggja niður. Héraðsskjalavörður hefur verið leystur frá störfum en á safninu vinnur enn sami fjöldi starfsmanna við að ganga frá skjölum til Þjóðskjalasafns. Þar fellur til kostnaður vegna leigu á hillumetrum og umsjá með skjölum Kópavogs. Þessi dæmi bætast við kostnað sem fallið hefur til vegna hönnunar, framkvæmda, búnaðarkaupa og slíks sem bæjarráð er algerlega óupplýst um. Þeir sem guma af hagræðingu og skilvirkni verða að leggja dæmið fyrir. Ég skora því á formann bæjarráðs að leggja fram heildaryfirlit um þann kostnað sem hlotist hefur af framkvæmd ákvarðana meirihlutans í menningarmálum. Það ætti að vera sjálfsagt mál. Höfundur er oddviti Vina Kópavogs í bæjarstjórn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira