Viðskipti innlent

Lands­bankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hlut­hafa

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Einar

Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti í gær samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. Tvær arðgreiðslur voru samþykktar á aðalfundi.

Í ársskýrslu kemur fram að hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna á árinu 2024. Arðsemi eiginfjár eftir skatta var 11,6 prósent á árinu 2025, samanborið við 12,1% arðsemi árið áður.

Í tilkynningu frá bankanum segir að annars hafi verið samþykktar tvær reglulegar arðgreiðslur vegna reikningsársins 2025, samtals að fjárhæð 18,9 milljarðar króna, sem samsvarar um 50 prósent af hagnaði ársins.

Hins vegar hafi svo verið samþykkt sérstök arðgreiðsla að fjárhæð 16,1 milljarður króna. Gjalddagi fyrri reglulegu arðgreiðslunnar og sérstöku arðgreiðslunnar er 25. mars 2026. Seinni reglulega arðgreiðslan verður greidd 16. september 2026.

Á fundinum flutti Jón Þorvarður Sigurgeirsson, formaður bankaráðs, skýrslu bankaráðs fyrir árið 2025 og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans. Ávarp Jóns er aðgengilegt á vef bankans.

Í tilkynningu kemur einnig fram að ársreikningur bankans fyrir árið 2025 hafi verið samþykktur sem og tillögur um starfskjarastefnu, þóknun bankaráðsmanna og heimild til kaupa á eigin hlutum. Þá var samþykkt tillaga um að bankaráð skuli skipað fimm bankaráðsmönnum í stað sjö.

Jón Þorvarður Sigurgeirsson var kjörinn formaður bankaráðs. Eftirtaldir voru kjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar sem aðalmenn:

  • Jón Þorvarður Sigurgeirsson (formaður)
  • Eva Halldórsdóttir
  • Rebekka Jóelsdóttir
  • Þór Hauksson
  • Örn Guðmundsson

Varamenn

  • Kristján Þ. Davíðsson
  • Stefanía G. Halldórsdóttir

Í tilkynningu kemur einnig fram að Hjörleifur Pálsson var kjörinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd félagsins. Ríkisendurskoðandi var kjörinn endurskoðandi félagsins fyrir rekstrarárið 2026. Í samræmi við heimildir ríkisendurskoðanda til að útvista verkefnum sínum hefur hann tilnefnt í framhaldi af útboði um verkefnið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers ehf. til að annast endurskoðun ársreikninga 2026.


Tengdar fréttir

Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum

Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta.

Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað

Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×