Stjórn vill greiða fimmtán milljarða í arð Lovísa Arnardóttir skrifar 11. febrúar 2026 18:07 Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka. Aðsend Stjórn Arion banka mun leggja það til á aðalfundi í mars að greiddur verði út arður sem nemur 11,5 krónum á hlut, sem samsvarar um 15 milljarða arðgreiðslu. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 30,6 milljarðar króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna árið 2024.
Í afkomutilkynningu kemur fram að hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka hafi verið 6,2 milljarðar króna á fjórðungnum, samanborið við 8,3 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2024. Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 11,6 prósentum á fjórða ársfjórðungi 2025 og 14,9 prósentum á árinu 2025. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 11,6 prósent samkvæmt tilkynningunni, samanborið við 16,4 prósent á fjórða ársfjórðungi 2024. Hagnaður á hlut var 4,50 krónur, samanborið við 6,01 krónu 2024. Í tilkynningu kemur einnig fram að hreinar þjónustutekjur námu 4,1 milljarði króna og að rekstur Varðar hafi skilað 1,1 milljarða króna hagnaði, samanborið við 1,7 milljarða á sama tíma árið áður. Lán til viðskiptavina jukust Kjarnatekjur, það er hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 7,3 prósent í samanburði við 2024 og rekstrarkostnaður jókst um 1,8 prósent, sem samsvarar 157 milljónum króna í samanburði við fjórða ársfjórðung 2024. Þá kemur einnig fram í tilkynningu að lán til viðskiptavina jukust um 27,3 milljarða króna eða 2,1 prósent á fjórðungnum, einkum lán til fyrirtækja. „Starfsemi Arion-samstæðunnar gekk vel á árinu og var arðsemi eiginfjár umfram markmið. Tekjur af kjarnastarfsemi bankans voru í takt við væntingar og sem fyrr er góð afkoma drifin áfram af fjölbreytni þeirrar þjónustu sem við bjóðum viðskiptavinum. Eiginfjárhlutföll og lausafjárhlutföll eru vel umfram kröfur eftirlitsaðila og lögbundin lágmörk. Stjórn Arion mun gera það að tillögu sinni á aðalfundi þann 11. mars að greiddur verði arður sem nemur 11,5 krónum á hlut, sem samsvarar um 15 milljarða arðgreiðslu,“ segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka í tilkynningu. Hann segir að á undanförnum árum hafi verið lögð áhersla á kerfisbreytingar á íslenskum fjármálamarkaði. Að styrkja þurfi kerfið og auka skilvirkni þess, hluthöfum og viðskiptavinum til góða. Enn viðræður um sameiningu í gangi „Með það að markmiði sóttist Arion eftir samrunaviðræðum við Kviku, fjórða stærsta banka landsins. Stjórnir félaganna samþykktu um mitt ár að ganga til samrunaviðræðna og standa nú yfir forviðræður við Samkeppniseftirlitið. Verði niðurstaða þeirra jákvæð þá verður formlegt erindi sent eftirlitinu,“ segir Benedikt. Hann segir hátt vaxtastig og þráláta verðbólgu hafa sett svip sinn á árið og dregið úr eftirspurn einstaklinga eftir lánsfé. „Ekki bætti dómur Hæstaréttar í október úr skák, þar sem vaxtabreytingarskilmáli óverðtryggðs láns Íslandsbanka var dæmdur ólögmætur að hluta. Í kjölfarið skertu margir lánveitendur, Arion banki þar á meðal, íbúðalánaframboð sitt. Í desember dæmdi Hæstiréttur hins vegar í máli gegn Arion banka, þar sem vaxtabreytingarskilmáli verðtryggðs íbúðaláns var dæmdur lögmætur.“ Hann segir að þrátt fyrir hátt vaxtastig hafi verið nokkur þróttur í íslensku hagkerfi og eftirspurn fyrirtækja eftir fjármögnun umtalsverð. „Lán okkar til fyrirtækja jukust á árinu um 90 milljarða króna sem er með því mesta sem við höfum séð á einu ári.“ Framkvæmdir á árinu Benedikt fjallar einnig um nýtt fríðindakerfi, lægri þóknanir vegna sjóðaviðskipta og átak bankans um fjárfestingar kvenna í tilkynningu sinni. Þá segir hann bankann síðustu ár hafa unnið að þróun tveggja stórra byggingarsvæða á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við sveitarfélögin sem þau tilheyra. „Hefur markmiðið verið að upp rísi eftirsóknarverð hverfi sem styrkja nærumhverfið með góðri tengingu við aðliggjandi náttúru. Annað þessara verkefna kláraðist á árinu, Arnarlandið í Garðabæ, og nú er deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalandsins í samráðsferli. Við færumst því nær því að uppbygging geti hafist á Blikastaðalandi, einu stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins,“ segir hann að lokum. Fram kemur í tilkynningu að fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verði á morgun, 12. febrúar, klukkan 8:30. Nánari upplýsingar um afkomu bankans má finna hér.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Fjármál heimilisins Verðlag Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira