Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar 19. mars 2026 06:15 Fjölgun kynferðisbrota gegn börnum í leikskólum kallar á skýr og tafarlaus viðbrögð. Hér er ekki svigrúm fyrir tafir, afsakanir eða flókin ferli sem tefja aðgerðir. Spurningar vakna um kerfið sjálft, hvernig getur þetta gerst? Eru stjórnendur með bundnar hendur? Er ráðningarferli leikskóla úrelt og ófullnægjandi? Getur stytting vinnuvikunnar og mikil veikindi starfsfólks aukið álag og skapað hættu? Eru reglur sveitarfélaga um mönnun orðnar svo stífar að ekki megi bregðast við með sveigjanlegum hætti, til dæmis með því að láta sækja börn fyrr þegar mannekla er til staðar? Erum við að spenna bogann of langt hvað varðar mönnun á kostnað barnanna ? Þetta eru erfiðar spurningar, en nauðsynlegt er að horfast í augu við þær. Öryggi barna má aldrei víkja fyrir rekstrarlegum þvingunum eða skorti á starfsfólki. Samkvæmt Barnasáttmálanum ber stjórnvöldum og öllum sem bera ábyrgð á börnum að setja hagsmuni þeirra í forgang. Það felur meðal annars í sér að vernda börn gegn ofbeldi og koma í veg fyrir misbeitingu. Viðbrögðin mega ekki vera að sóa dýrmætum tíma í að setja á laggirnar nefndir sem síðan stofna undirnefndir sem stofna síðan fleiri undirnefndir. Nú þarf aðgerðir, ekki bara orð. Það þarf að tryggja nægjanlega mönnun á öllum tímum dags. Borið hefur á því að börn séu í aðstæðum þar sem eftirlit er ófullnægjandi, hvort sem það er sökum sparnaðar eða að viðhalda markmiði um 0 lokunardaga, þá er slíkt óboðlegt. Ef mannekla kemur upp þarf að vera heimild til að grípa til ráðstafana. Leikskólar verða að hafa fjárheimildir til þess að ráða besta starfsfólkið og manna allar stöður vel. Öryggi barna er ekki samningsatriði og mun ég leggja mitt að mörkum til þess berjast fyrir raunverulegum lausnum í þessum málaflokki. Höfundur er leikskólastjóri og í 2. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Fjölgun kynferðisbrota gegn börnum í leikskólum kallar á skýr og tafarlaus viðbrögð. Hér er ekki svigrúm fyrir tafir, afsakanir eða flókin ferli sem tefja aðgerðir. Spurningar vakna um kerfið sjálft, hvernig getur þetta gerst? Eru stjórnendur með bundnar hendur? Er ráðningarferli leikskóla úrelt og ófullnægjandi? Getur stytting vinnuvikunnar og mikil veikindi starfsfólks aukið álag og skapað hættu? Eru reglur sveitarfélaga um mönnun orðnar svo stífar að ekki megi bregðast við með sveigjanlegum hætti, til dæmis með því að láta sækja börn fyrr þegar mannekla er til staðar? Erum við að spenna bogann of langt hvað varðar mönnun á kostnað barnanna ? Þetta eru erfiðar spurningar, en nauðsynlegt er að horfast í augu við þær. Öryggi barna má aldrei víkja fyrir rekstrarlegum þvingunum eða skorti á starfsfólki. Samkvæmt Barnasáttmálanum ber stjórnvöldum og öllum sem bera ábyrgð á börnum að setja hagsmuni þeirra í forgang. Það felur meðal annars í sér að vernda börn gegn ofbeldi og koma í veg fyrir misbeitingu. Viðbrögðin mega ekki vera að sóa dýrmætum tíma í að setja á laggirnar nefndir sem síðan stofna undirnefndir sem stofna síðan fleiri undirnefndir. Nú þarf aðgerðir, ekki bara orð. Það þarf að tryggja nægjanlega mönnun á öllum tímum dags. Borið hefur á því að börn séu í aðstæðum þar sem eftirlit er ófullnægjandi, hvort sem það er sökum sparnaðar eða að viðhalda markmiði um 0 lokunardaga, þá er slíkt óboðlegt. Ef mannekla kemur upp þarf að vera heimild til að grípa til ráðstafana. Leikskólar verða að hafa fjárheimildir til þess að ráða besta starfsfólkið og manna allar stöður vel. Öryggi barna er ekki samningsatriði og mun ég leggja mitt að mörkum til þess berjast fyrir raunverulegum lausnum í þessum málaflokki. Höfundur er leikskólastjóri og í 2. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar