Náðu loksins saman um að bjarga WNBA eftir hundrað klukkutíma viðræður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 21:15 Caitlin Clark missti af stórum hluta síðasta tímabils með Indiana Fever og það skipti miklu máli fyrir WNBA-deildina að nýta sér áfram vinsældir hennar. Verkfall eða að þurfa að aflýsa tímabilinu hefði komið sér afar illa í að nýta sér Clark-meðbyrinn. Getty/Paras Griffin Það lítur út fyrir að WNBA-tímabilinu í körfubolta hafi verið bjargað fyrir horn aðeins 51 degi áður en þrítugasta tímabil deildarinnar átti að hefjast.
Eftir mjög langar kjaraviðræður náðu WNBA-deildin og leikmannasamtök kvenna í körfuknattleik (WNBPA) munnlegu samkomulagi um skilmála nýs kjarasamnings snemma á miðvikudag. BREAKING: The WNBA and Women's National Basketball Players Association reached a verbal agreement on the terms for a new CBA that, for the first time in league history, ties its salary system to revenue growth and is expected to offer $1M salaries, per @alexaphilippou. pic.twitter.com/V2TbUCgRC9— Yahoo Sports (@YahooSports) March 18, 2026 „Sá árangur sem náðst hefur í þessum viðræðum markar umbreytandi skref fram á við fyrir leikmenn og deildina,“ sagði Cathy Engelbert, framkvæmdastjóri WNBA. Í fararbroddi í kvennaíþróttum „Þetta hefur verið ferli, en við erum mjög stolt af því að vera í fararbroddi í kvennaíþróttum, þessir leikmenn eru magnaðir og við munum eiga magnað 30. keppnistímabil sem hefst í maí,“ sagði Engelber. Engelbert, Terri Carmichael Jackson, framkvæmdastjóri WNBPA, og fjórir meðlimir framkvæmdastjórnar WNBPA – forsetinn Nneka Ogwumike, varaforsetarnir Breanna Stewart og Alysha Clark og gjaldkerinn Brianna Turner – deildu fréttunum með fréttamönnum í anddyri The Langham hótelsins á mið-Manhattan, þar sem yfir hundrað klukkustunda maraþonviðræður þeirra hófust viku áður. Valdefling leikmanna „Ég held að þetta megi draga saman í tveimur orðum: valdefling leikmanna. Leikmenn sem koma að borðinu, standa á sínu og eru minntir á sameiginlega rödd sína og hvað það þýðir að vera í stéttarfélagi og kraft þess. Þeir gleymdu því aldrei og hafa, eins og þeir gera alltaf, tekið það á næsta stig,“ sagði Jackson. The WNBA and Women's National Basketball Players Association reached a verbal agreement for a new collective bargaining agreement.@alexaphilippou joined SportsCenter to report the details of the agreement. pic.twitter.com/FoLuyVop5w— SportsCenter (@SportsCenter) March 18, 2026 Enn á eftir að ganga frá formlegum samningsskilmálum og samningurinn er háður staðfestingu leikmanna og stjórnar WNBA. Búist er við að æfingabúðir hefjist 19. apríl, síðan hefjast undirbúningsleikir 25. apríl og venjulegt keppnistímabil hefst 8. maí. Nákvæm dagskrá fyrir restina af undirbúningstímabilinu var ekki tilkynnt, þó að deildin verði enn að halda leikmannaval fyrir tvö ný lið og samningalausir leikmenn, sem eru yfir hundrað, geta samið við lið þegar samningurinn hefur verið staðfestur, sem gæti tekið nokkrar vikur. Nýliðavalið er áætlað 13. apríl. Þetta verður sjötti kjarasamningurinn í sögu deildarinnar í kjölfar samninga árin 1999, 2003, 2008, 2014 og 2020. Við erum stolt af okkur „Við erum bara virkilega þakklát fyrir að hafa náð samkomulagi. Við erum stolt af okkur. Og satt best að segja sögðum við ykkur alltaf að við myndum standa á okkar og þannig lítur það út,“ sagði Ogwumike. .@ShamsCharania announces details of a landmark WNBA collective bargaining agreement ⬇️ pic.twitter.com/Vn1y6PPRRK— Get Up (@GetUpESPN) March 18, 2026 Samningurinn er til þess fallinn að endurspegla ört vaxandi vinsældir og vöxt deildarinnar, en áhorf, aðsókn og fjárfestingar hafa náð sögulegu hámarki á undanförnum árum. Allir fá nákvæmlega það sem þeir eiga skilið „Í fyrsta skipti eru laun leikmanna tengd raunverulega marktækum hluta af tekjum deildarinnar, sem knýr fram veldisvöxt í launaþakinu, hækkar meðallaun yfir hálfa milljón dollara og hækkar staðalinn varðandi aðstöðu, starfsfólk og stuðning,“ sagði Ogwumike. „Þessi samningur mun breyta mjög miklu,“ sagði Stewart. „Hann mun byggja upp og hjálpa til við að skapa kerfi þar sem allir fá nákvæmlega það sem þeir eiga skilið og meira til, bæði innan og utan vallar. Ég er bara spennt fyrir því að geta sagt aðdáendum okkar að við séum að koma aftur.“ sagði Stewart. View this post on Instagram A post shared by Yahoo Sports (@yahoosports)
WNBA Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti LeBron James yfirgefur Lakers Körfubolti Frakkland - Svíþjóð | Fellur annar risi úr leik? Fótbolti Fleiri fréttir Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Sjá meira