„Kristrún, það er ljótt að plata“ Árni Sæberg skrifar 18. mars 2026 09:42 Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins. Vísir/Einar Formaður Starfsgreinasambandsins gefur lítið fyrir það að ríkisstjórnin berji sér á brjóst vegna stýrivaxtalækkana sem orðið hafa í stjórnartíð hennar. Vextir viðskiptabankanna séu þrátt fyrir þær enn hærri en þeir voru við gerð stöðugleikasamninganna svokölluðu.
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Gjöf sem þjóðin þurfti ekki á að halda Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, var á línunni í Bítinu á Bylgjunni í tilefni af vaxtaákvörðuninni. „Ég held að þetta sé einhver gjöf sem íslenska þjóðin þarf ekki á að halda þessa dagana, því að nóg dynur á okkur og það er alveg ljóst að þau markmið sem við lögðum upp með í apríl 2024, að skapa hér skilyrði með því að semja til langs tíma, fjögurra ára, með hófstilltum hætti. Við ætluðum að skapa skilyrði til þess að ná niður verðbólgunni, ná niður vöxtum. En nú er staðan orðin einfaldlega þannig að þetta er algjörlega að fara í þveröfuga átt,“ segir hann. Vextir þrátt fyrir allt hækkað Þegar samningar náðust hafi stýrivextir verið í 9,25 prósentum og hafi því lækkað um 1,75 prósentur. Verðbólga hafi verið í 6,8 prósentum en hún er nú í 5,2. „Vissulega hefur þetta aðeins sigið niður, en takið eftir. Hvað voru óverðtryggðir vextir hjá Landsbankanum, ríkisbankanum þegar við semjum? Þá voru þeir 10,75 prósent, grunnvextirnir, þeir standa núna í 9,75 prósentum. Eftir þessa hækkun verða þeir komnir upp í 10 prósent. Þannig að þeir hafa einungis lækkað um 0,75 prósent.“ Þá hafi verðtryggðir vextir hjá sama banka verið fjögur prósent þegar samið var en eftir hækkun dagsins fari þeir í fimm prósent. „Þannig að þegar þú tekur bæði óverðtryggðu og verðtryggðu vextina, þá erum við búin að horfa upp á hækkun. Samt eru stjórnvöld að koma fram í fjölmiðlum og minna fólk á að vextir hafi lækkað um tvö prósent og ég verð nú bara að segja, af því að Kristrún sagði þetta síðast í fréttum í gær, Kristrún, það er ljótt að plata. Vextir til almennings hafa verið að hækka og þá er ég fyrst og fremst að tala hér um verðtryggða vexti þar sem fólk hefur verið þvingað yfir í þá aftur og þeir hafa hækkað um eitt prósent frá því að við undirrituðum þessa samninga.“ Fundurinn hafi engu skilað Ertu að segja að Kristrún forsætisráðherra sé að plata eða veit hún ekki betur eða hvað? „Já, hún ætti að vita betur vegna þess að ég fór akkúrat yfir þessar tölur í Stjórnarráðinu þegar að við aðilar vinnumarkaðarins hittum þau núna í síðustu viku.“ Vilhjálmur segir að um hvíta lygi sé að ræða hjá Kristrúnu. „Hvíta lygin er fólgin í því að hún er að horfa á hvað stýrivextirnir hafa lækkað. Hvað stýrivextirnir hafa lækkað. Þeir hafa lækkað um tvö prósent. En þú verður að horfa á vextina sem viðskiptabankarnir eru að að bjóða viðskiptavinunum upp á. Og ég var bara að benda á það að verðtryggðu vextirnir hafa núna með þessari hækkun hækkað um eitt prósent. Þeir hafa hækkað um eitt prósent, ekki lækkað um tvö prósent.“
Stéttarfélög Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Viðskipti innlent Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Viðskipti innlent Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Sjá meira