Spá óbreyttum stýrivöxtum Birgir Olgeirsson skrifar 17. mars 2026 11:47 Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka Anton Brink Arion banki spáir því að stýrivextir verði óbreyttir eftir vaxtaákvörðunarfund peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á morgun. Hagkerfið sé í talsverðri kólnun sem sjáist í samdrætti í nýjustu kortaveltutölum, auknu atvinnuleysi og verri atvinnuhorfum.
Íslandsbanki og Landsbankinn hafa spáð 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta sem myndi þýða að meginvextir færu í 7,5%. Báðar greiningar röktu að verðbólgan væri hærri en gert var ráð fyrir og verðbólguhorfur ekki góðar. Þó var tekið fram að peningastefnunefndin gæti haldið vöxtum óbreyttum. Aðalhagfræðingur Arion banka telur hins vegar að vextirnir verði óbreyttir að þessu sinni og nefndin vilji frekar bíða og sjá hver staðan verður eftir tvo mánuði. Nýjustu kortaveltutölur sem bárust í morgunsárið séu kaldari en áður. „Auðvitað getur maður ekki dregið of miklar ályktanir af einni mælingu en engu að síður þá bendir þetta til þess að það sé aðeins að hægja á neyslu í kerfinu,” segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka. Það komi til viðbótar við kólnun á vinnumarkaði. Atvinnuleysi sé að aukast, atvinnuhorfur að versna og fasteignamarkaðurinn sömuleiðis að kólna.Framsýn leiðsögn Seðlabankans á síðasta vaxtaákvörðunarfundi hafi gert ráð fyrir lækkun. Búast megi við harðari tón frá nefndinni en að vextir standi í stað. „Þó að verðbólguhorfur hafi versnað þá auðvitað má að miklu leyti rekja það til stríðsátaka og hækkandi olíuverðs. Og það er algjörlega fyrir utan valdsvið nefndarinnar, þannig að að einhverju leyti ætti hún að geta horft í gegnum fingur sér hvað þau áhrif varðar á verðbólguna. Auðvitað tók hún líka stökk upp á við um áramótin þegar það komu breytingar í gjaldtöku hjá hinu opinbera. Þetta er eitthvað sem nefndin hefur kannski ekki beint á sína könnu en hún óttast auðvitað áhrifin á verðbólguna þegar að hún hefur verið þetta þrálát,“ segir Erna Björg en Arion banki á von á að verðbólgan verði mikil fram á sumarið. „Eins og staðan er í dag að þá sjáum við fyrir okkur að verðbólgan verði mikil núna í mars og áfram í apríl og maí en verði vonandi komin undir 5% inn í júní,” segir Erna Björg Sverrisdóttir.
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Sjá meira