Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. mars 2026 17:00 Lovísa Thompson var, að öðrum ólöstuðum, langbesti leikmaður vallarins í dag. Vísir/Anton Brink Lovísa Thompson var heldur betur allt í öllu er Valur vann dramatískan eins marks sigur gegn Fram í 19. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í dag, 32-31. Það var lítið sem ekkert sem skildi liðin að í fyrri hálfleik. Framarar virtust þó vera hálfu skrefi framar og náðu mest þriggja marka forskoti í stöðunni 4-7, en Valskonur voru fljótar að kvitta fyrir það og jöfnuðu metin á ný stuttu síðar. Eftir það varð munurinn á liðunun nánast aldrei meiri en eitt mark fyrir hlé, en Valskonur náðu þó aldrei forystunni, nema í eitt skipti þegar liðið leiddi 11-10. Gestirnir í Fram voru áfram með frumkvæðið og Valsliðið elti. Fram náði tveggja marka forskoti stuttu fyrir hálfleikshléið, en Lovísa Thompson minnkaði muninn aftur niður í eitt mark áður en hálfleiksflautið gall og staðan því 14-15 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Svipaða sögu er að segja af seinni hálfleik. Framarar höfðu yfirhöndina og Valsliðið var að elta. Framarar náðu þriggja marka forskoti í tvígang í seinni hálfleik og voru stærstan hlutann sterkari aðilinn. Valsliðið kom þó alltaf til baka og hleypti Fram aldrei of langt fram úr sér. Valskonur áttu þó ás uppi í erminni. Lovísa Thompson hafði nákvæmlega engan áhuga á því að tapa þessum leik og dró vagninn fyrir Val. Alls skoraði Lovísa 15 mörk fyrir Valsliðið í dag og gestirnir í Fram réðu engan vegin við hana. Valskonur náðu loks forystunni undir lok leiks, en Ásdís Guðmundsdóttir jafnaði metin þegar um 20 sekúndur voru eftir þegar hún lét verja frá sér víti, en tók frákastið og skoraði. Valsliðið fékk því eina stutta sókn til að stela sigrinum þar sem Lovísa Thompson kórónaði frábæran leik sinn með sigurmarkinu í þann mund sem leiktíminn rann út. Lokatölur 32-31 og deildarmeistaratitillinn svo gott sem í höfn hjá Valskonum. Atvik leiksins Vítakastið undir lok leiks sem Ásdís Guðmundsdóttir tók var hársbreidd frá því að ráða úrslitum. Ásdís lét Elísabetu Millý Elíasardóttur verja frá sér, en tók sjálf frákastið. Seinna skot hennar hafnaði í stönginni, en þaðan fór boltinn í hælinn á Elísabetu og þaðan inn. Allt jafnt þegar 20 sekúndur voru eftir, en því miður fyrir Ásdísi og Framara urðu gestirnir að sætta sig við tap. Stjörnur og skúrkar Að öðrum leikmönnum ólöstuðum bar Lovísa Thompson höfuð og herða yfir þær sem tóku þátt í dag. Lovísa skoraði 15 mörk úr 20 skotum, skoraði sigurmarkið og dró vagninn fyrir heimakonur þegar mest á reyndi. Dómararnir Þeir Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson héldu fínni línu í dag. Þjálfarar beggja liða nældu sér í spjald á bekknum, en annars var lítið tuðað yfir störfum dómara leiksins. Olís-deild kvenna Valur Fram