Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Árni Sæberg skrifar 12. mars 2026 10:30 Una Jónsdóttir er aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Vilhelm Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55 prósent á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 5,2 prósentum í 5,4 prósent. „
Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7 prósentum í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4 prósentum sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki,“ segir í pistli á vef Landsbankans. Kollegar hagfræðinga Landsbankans í Íslandsbanka spá því að verðbólga aukist í 5,3 prósent og að stýrivextir verði hækkaðir. Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 18. mars. Nefndin hélt vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun og standa þeir nú í 7,25 prósentum. Í öðrum pistli á vef Landsbankans segir að greiningardeild bankans spái sömuleiðis vaxtahækkun. „Sviptingar á alþjóðamörkuðum, þá helst hækkun olíuverðs vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum, hafa þó aukið verðbólguþrýsting og sérstaklega verðbólguvæntingar og við teljum líklegt að peningastefnunefnd horfi sérstaklega til þess við næstu ákvörðun og hækki því vexti.“
Landsbankinn Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira