Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. mars 2026 21:45 Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair hefur áhyggjur af stöðu félagsins. Egill/Vilhelm „Það er alltaf góður díll í dag að kaupa félagið og leggja það niður. Það er auðvitað það sem gerir það hættulegt þjóðaröryggislega séð að þetta gæti verið freistnivandi fyrir einhverja aðila að skoða það einfaldlega að leysa félagið upp,“ segir Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair.
Greint var frá því í morgun að gengi hlutabréfa í flestum félögum Kauphallarinnar hefði lækkað frá því að markaðir lokuðu á föstudag. Athygli vakti að gengi bréfa í Icelandair hafði lækkað um 1,43 prósent en það stóð í aðeins 0,69 krónum. Jón Karl lýsti yfir áhyggjum af stöðu félagsins í Reykjavík síðdegis. Þá furðaði hann sig á verðlagningu félagsins, sem hann telur markaðinn vanmeta. „Ég skil ekki alveg hvernig verðlagning á félaginu er, af því að upplausnarvirði félagsins hefur í mörg ár verið hærra heldur en markaðsvirðið. Og miðað við þessar tölur, þá er það núna sinnum þrír eitthvað svoleiðis. Það er náttúrulega með ólíkindum að markaður skuli ekki verðleggja þetta öflugt félag, kannski ekki óháð rekstri en miðað við eignastöðu, stöðu fjármuna og fleira.“ Flugfargjöld ekki lengur lúxusvara Aðspurður hvers vegna markaðurinn hafi ekki meiri trú á félaginu segir hann ýmsar skýringar á því. Til að mynda hafi undanfarin rekstrarár ekki verið góð. „Félagið hefur ekki borgað arð í níu ár. Og það er auðvitað þannig að ef þú átt pening í dag og getur valið á milli kaupa í bönkunum eða félögum sem að borga eðlilegan og reglulegan arð, þá er ekkert óeðlilegt að fjárfestar líti aðeins undan og og fari þá frekar þangað þar sem þú ert þó að fá eitthvað fyrir það sem þú leggur inn,“ segir Jón Karl. Þá nefnir hann kórónuveirufaraldurinn og samkeppnisstöðu, sem sé líkt og áður hefur veirð fjallað um, ósjálfbær og takmarki verðlagsmöguleika félagsins. „Við höfum rætt það áður að flugfargjöld eru í eðli sínu lág, þó að okkur finnist það í sjálfu sér ekki. En í öllu sögulegu samhengi og horft til baka, þá eru flugfargjöld, sem voru áður munaðarvara, eru í dag bara orðin svokallað commodity eða neysluvara. Fólk kaupir bara það ódýrasta á markaði.“ Ríkið „ekki sérstaklega góður“ rekstraraðili Um það hvort ríkið ætti að gerast eigandi Icelandair segir Jón Karl það pólitíska spurningu. Evrópuríki hafi þó að undanförnu leitast við að koma flugfélögum úr ríkiseigu og yfir á markað. „Almennt finnst mér persónulega ekki ríkið sérstaklega góður rekandi á fyrirtækjum,“ segir Jón Karl. Er raunveruleg hætta á því að einhver aðili kaupi fyrirtækið, leggi það niður og selji eignir og græði? „Það er raunveruleg hætta þegar markaðsverð er langt undir upplausnarverði. Já, svarið er einfaldlega já. Það er bara eðli hins almenna markaðar að þegar fyrirtæki eru verðlögð langt undir einhvers konar raunvirði, getum við kallað það, þá er auðvitað í raun ákveðin hætta á því.“ Hann bendir þó á að um leið og slíkar þreifingar færu af stað myndi gengi félagsins að öllum líkindum rjúka upp. Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan.
Icelandair Fréttir af flugi Ferðaþjónusta Reykjavík síðdegis Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira