Bílastæði eða blómaker? Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar 7. mars 2026 07:31 Svarið er bæði - en ekki með því að skipta einu út fyrir annað. Undanfarin misseri hefur orðið sífellt algengara að bílastæðum í miðborg Reykjavíkur sé breytt í blómaker. Blóm eru falleg og gróður bætir borgarumhverfið, það er enginn að draga það í efa. Vandinn skapast hins vegar þegar slíkar breytingar eru gerðar án samráðs við íbúa og notendur svæðisins - og án þess að raunhæfar lausnir komi í staðinn. Þá verður fegrunin að hindrun. Þegar borgarbúar þurfa að keyra hring eftir hring miðsvæðis í borginni í leit að bílastæðum, fellur ansi fljótt á þá fegurð sem falleg blómaker annars veita. Bílum fjölgar Bílum fjölgar ár frá ári. Flestir borgarbúar kjósa enn að ferðast um á einkabílum. Þetta er einföld staðreynd sem ekki verður horft fram hjá - sama hversu fallega framtíðarsýn við höfum um breyttar ferðavenjur. Auðvitað er þetta óheillavænleg þróun þegar litið er til löngu sprunginna samgönguinnviða - sem svo leiða af sér enn meiri umferðarteppur með tilheyrandi mengun og tímaeyðslu fyrir alla. Almenningssamgöngur eru einfaldlega ekki komnar á það stig að þær geti leyst einkabílinn af hólmi fyrir meirihluta fólks í daglegu lífi. Skortur á hentugum bílastæðum er þegar orðinn áþreifanlegt vandamál víða í borginni. Þegar stæðum fækkar án mótvægisaðgerða, eykst að sama skapi leit ökumanna að stæðum, umferð verður ómarkvissari og álag flyst yfir í nærliggjandi hverfi. Þetta bitnar á íbúum, verslun og þjónustu – og ekki síst á þeim hópum sem hafa ekki raunhæfa valkosti: barnafjölskyldum, eldra fólki, hreyfihömluðum og fólki í stuttum erindum. Ef fækka á bílastæðum, þarf að huga betur að öðrum lausnum á móti. Þar felast tækifæri til nýsköpunar, til dæmis með vel útfærðum bílastæðahúsum sem falla betur að borgarlandslaginu. Slík hús væri hægt hanna á þann hátt að bæði einfalt og fljótlegt yrði að reisa þau. Einnig þarf að skoða bílagerði eða hús nálægt stærri samgöngumiðstöðvum þar sem fólk getur skilið bílinn eftir og tekið strætó síðasta spölin inn í miðbæ. Slíkt styður raunverulega við breyttar ferðavenjur með því að nýta kosti og samhæfni sem flestra samgöngumáta. Stafrænar lausnir hjálpa til Að lokum er áberandi að enn vantar hagkvæmar stafrænar lausnir. Engin heildstæð RVK-app lausn er til staðar sem sýnir laus bílastæði í rauntíma - þrátt fyrir að slíkt sé löngu orðið sjálfsagt víða erlendis. Slíkar lausnir myndu draga úr óþarfa akstri og bæta upplifun borgarbúa strax. Það er svo margt sem hægt er að gera til þess að bæta hlutina. Til þess að svo megi verða þarf einfaldlega að fara að hugsa örlítið út fyrir boxið. Falleg borg þarf ekki aðeins að líta vel út – hún þarf einnig að virka fyrir alla. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík og situr m.a. í umhverfis- og skipulagsráði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar