Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 7. mars 2026 18:48 „Reject from Tindastóll“ var sungið af stuðningsmönnum KR. Woods var þó stigahæstur í liði Valsmanna í kvöld. Pawel Cieslikiewicz Valur sigraði KR í framlengdum og hörku spennandi leik á Hlíðarenda í kvöld. KR náði fjögurra stiga forystu í framlengingunni en Valsmönnum tókst að snúa leiknum sér í vil og tryggja sér sigurinn, 92-90. Leikurinn byrjaði jafnt hjá liðunum þar sem eitt til tvo stig skildu liðin að fyrsta leikhlutann. Annar leikhluti var einnig afar jafn en undir lok leikhlutans komust Valsmenn í sjö stiga forystu. Toms Leimanis tókst að minnka muninn niður í fjögur stig með mikilvægri þriggja stiga körfu á lokasekúndum leikhlutans. Staðan 45-41, Val í vil, þegar flautað var til hálfleiks. Þriðji leikhluti var hnífjafn hjá liðunum eða 25-25. Valsmönnum tókst mest að komast í sjö stiga forystu líkt og í öðrum leikhluta en Kenneth Doucet átti sterkan kafla þar sem honum tókst að sækja sex stig á skömmum tíma. Valsmenn leiddu með fjórum þegar farið var inn í fjórða leikhlutann. Þriðji leikhluti var afar spennandi en KR tókst að komast yfir í fyrsta skipti frá því í fyrsta leikhluta. Leikhlutinn var þó að öðru leyti jafn og var allt í járnum undir lokin. Staðan 84-84 þegar mínúta var eftir en hvorugu liði tókst að nýta sóknirnar sínar. KR fékk síðasta tækifærið þegar tvær sekúndur voru eftir en náði ekki að skora og framlenging því niðurstaðan. KR komst í fjögurra stiga forystu í framlengingunni en missti forystuna frá sér. Kári setti þá niður mikilvægan þrist fyrir Valsmenn en Tóta Turbo mistókst að koma boltanum í körfuna í lokasókn KR-inga. 92-90 niðurstaðan og Valsmenn tryggja sér tvo mikilvæg stig. Atvik leiksins Það hlýtur að vera hvernig báðum liðum mistókst einhvernveginn að tryggja sér sigurinn á lokamínútunni í fjórða leikhluta. Bæði lið töpuðu boltanum í sóknum sínum og voru ekki nógu varkárir. Stjörnur og skúrkar Keyshawn Woods var stigahæstur hjá Valsmönnum með 24 stig. Kári Jónsson var með 21 stig og 5 stoðsendingar. Kristófer Acox kom þar næstur með 17 stig, 16 fráköst og 7 stoðsendingar. Linards var stigahæstur hjá KR-ingum með 26 stig. Tóti Turbo kom þar næstur með 18 stig, 7 fráköst og 9 stoðsendingar. Stemning og umgjörð Flott mæting í N1-höllina á Hlíðarenda en bæði lið létu ágætlega heyra í sér. Það var ennþá meiri stemning í framlengingunni þar sem stuðningsmenn beggja liða stóðu upp og létu vel í sér heyra. Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Jón Þór Eyþórsson og Friðrik Árnason stóðu vaktina á parketinu í kvöld á þessu fallega laugardagskvöldi. Það var lítið um rifrildi við dómarana í kvöld og svona heilt yfir sanngjörn dómgæsla. Það bar ekki mikið á þessum herramönnum í kvöld.Pawel Cieslikiewicz Bónus-deild karla Valur KR
Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Körfubolti
Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Körfubolti