Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Árni Sæberg skrifar 4. mars 2026 13:15 Ríkarður Ríkarðsson, nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Landsnets. Landsnet Ríkarður Ríkarðsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Landsnets og mun hefja störf um miðjan apríl næstkomandi. Hann verður staðgengill forstjóra og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins, mun stýra sameiginlegum málefnum í umboði forstjóra og verður stjórn og forstjóra til ráðgjafar í stefnumótun, innleiðingu stefnu og ákvörðunartöku.
Í tilkynningu þess efnis á vef Landsnets segir að Ríkharður gjörþekki orkugeirann og íslenskt atvinnulíf. Hann hafi starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2011 að fjölbreyttum verkefnum, einkum á sviði viðskipta- og markaðsmála. Hann hafi verið framkvæmdastjóri í um níu ár, þar af síðustu fimm ár sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar auk þess að stýra alþjóðlegum verkefnum fyrirtækisins í gegnum dótturfélagið Landsvirkjun Power. Þá hafi hann átt sæti í stjórnum fyrirtækja á borð við Farice, Laki Power, Jarðböðunum á Mývatni og sitji í stjórn Samorku og Grænvangs. Þar áður hafi Ríkarður verið stjórnendaráðgjafi hjá McKinsey, forstöðumaður og ráðgjafi hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum og stjórnandi hjá bandarísku hátæknifyrirtæki í London. Hann hafi útskrifast með BSc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá University of Denver árið 2000, MSc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford University árið 2002 og lokið námi í stjórnunarfræðum við IMD Business School árið 2017. „Það er frábært að fá Ríkarð til liðs við Landsnet og mun þekking hans og reynsla nýtast afar vel við að mæta þeim fjölmörgu áskorunum sem við blasa. Styrking og áframhaldandi uppbygging flutningskerfisins er lykilatriði fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf til frambúðar og við verðum öll að leggjast á eitt svo það megi takast. Ráðning Ríkarðs mun styrkja okkur á þeirri vegferð og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til Landsnets,“ er haft eftir Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets.
Orkumál Vistaskipti Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira