Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. mars 2026 14:26 Alexandra Líf Arnarsdóttir er í lykilhlutverki hjá Haukum, jafnt í vörn og sókn. vísir/diego Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur dregið út úr íslenska kvennalandsliðinu í handbolta vegna meiðsla. Alexandra Líf Arnarsdóttir hefur verið kölluð inn í landsliðshópinn í hennar stað.
Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum annað kvöld. Þetta er þriðji leikur íslenska liðsins í undankeppninni en það á enn eftir að ná í sitt fyrsta stig. Í gær var greint frá því að Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefði dregið sig út úr landsliðinu en hún er barnshafandi. Í hennar stað kom Sonja Lind Sigsteinsdóttir inn í landsliðshópinn. Ólíklegt þykir að Thea Imani Sturludóttir spili með íslenska liðinu á morgun vegna meiðsla. Þá verður Díana Dögg Magnúsdóttir ekki með vegna prófa. Ísland og Svartfjallaland mætast á Ásvöllum annað kvöld. Liðin mætast svo aftur í Podgorica í Svartfjallalandi á sunnudaginn. Svartfjallaland er á toppi riðilsins með fjögur stig. Færeyjar og Portúgal eru bæði með tvö stig en Ísland ekki neitt. Tvö efstu liðin í riðlunum sex í undankeppninni komast á EM sem og þau fjögur lið sem eru með bestan árangur í 3. sæti riðlanna.
EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Allegri og allir stjórnendur AC Milan reknir Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Enski boltinn Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Fleiri fréttir Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Sjá meira