Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 2. mars 2026 18:36 Ignas Brazdeikis og félagar voru einfaldlega sterkari en strákarnir okkar í kvöld. Getty/Rokas Lukosevicius Ísland vann magnaðan endurkomusigur gegn Litaén í fyrri leik liðanna á föstudag en varð að sætta sig við tap úti í Litaén í dag, í undankeppni HM karla í körfubolta. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og tók Íslenska liðið uppkastið en Litháar komu þó fyrstu stigum á töfluna og svaraði Kristinn Pálsson því með þriggja stiga skoti fyrir Ísland. Ignas Sargiunas reyndist Íslendingum erfiður í fyrsta leikhluta en hann setti níu stig og átti Íslenska liðið í stökustu vandræðum með hann í fyrsta leikhluta. Hægt og rólega fóru Litháar að auka við forskot sitt og leiddi með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta 26-14. Tapaðir boltar og klaufagangur sóknarlega fylgdi Íslenska liðinu út í annan leikhluta og var Íslenska liðið með átta tapaða bolta í fyrri hálfleik og refsuðu heimamenn í Litháen okkur grimmt. Kristinn Pálsson var okkar öflugasti maður í fyrri hálfleik en hann var með níu stig og var að setja góð skot á mikilvægum tímapunktum. Íslenska liðið fékk tækifæri til þess að komast inn í leikinn en voru sjálfum sér verstir oft á tíðum með klaufalegum tæknifeilum. Litháar fór inn í hálfleikinn með nítján stiga forskot 52-33. Iggy Brazdeikis og Ignas Sargiunas reyndust Íslendingum hvað erfiðastir í fyrri hálfleiknum og voru báðir með tólf stig hvor. Litháar byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og hlupu full auðveldlega í gegnum Íslenska liðið sem virkaði á tíðum heldur bensínlaust og full kraftlaust. Orkan var meiri í liði heimamanna sem voru að skjóta virkilega vel og fóru með 23 stiga forystu inn í fjórða leikhluta 79-56. Það kom meiri kraftur með Íslenska liðinu út í fjórða leikhluta en það var bara full seint í rassinn gripið. Tapaðir boltar og tæknifeilar gerðu okkur erfitt fyrir. Nýting Íslenska liðsins fyrir aftan þriggja stiga línuna var heldur ekki góð. Litháar fóru að lokum með nokkuð sanngjarnan og sannfærandi sautján stiga sigur 99-82. Atvik leiksins Það kom smá kafli í fjórða leikhluta þar sem Íslenska liðið virtist vera að komast á bragðið og maður fór með hugann í föstudaginn en Litháar drápu alla von fljótlega. Stjörnur og skúrkar Kristinn Pálsson var okkar öflugasti leikmaður í kvöld. Hann var að setja stóru skotin okkar í leiknum og endaði með 23 stig. Hefði mátt fá ögn meiri hjálp í sóknarleiknum. Hjá Litháum voru Iggy Brazdeikis með 27 stig og Ignas Sargiunas með 18 stig okkur mjög erfiðir. Dómararnir Sitt sýnist hverjum um þeirra störf í kvöld en heilt yfir var þetta bara þokkalega dæmt. Línan var stundum heldur óskýr en það er ekki það sem skildi á milli. Stemingin og umgjörð Full höll í Klaipeda og stemningin eftir því. Litháen gríðarleg körfuboltaþjóð og líta á þetta sem hálfgerð trúarbrögð. Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta