Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. febrúar 2026 10:02 Elvar Már Friðriksson fagnar sigurkörfu sinni gegn Litáen. Augnablik sem seint gleymist. Vísir/Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti.
07:12 Martinas Geben setur niður þrist. 56-77. Jæja, þar fór það. Hverjir eru hjá Gísla Marteini í kvöld? Hvað ætli séra Brown sé að brasa á eftir? Get ég bætt einhverju inn í umræðuna um stóra Smjörva/Bertolli-málið? Er hundurinn búinn að fara út að pissa? 05:45 Elvar setur niður þriggja stiga skot og svo vítaskot skömmu seinna. 62-77. Jæja, þetta verður allavega ekki algjört burst. 04:18 Hilmar Smári Henningsson setur niður tvö vítaskot. Búinn að skora fimm stig í röð. 67-78. Ok, ég held áfram að horfa en þetta er ekki að fara að gerast, er það? Það lifnaði heldur betur yfir bláa hluta Hallarinnar þegar fór að birta til hjá íslenska liðinu um miðbik 4. leikhluta.vísir/hulda margrét 03:44 Elvar neglir niður þristi og Litáar taka leikhlé. 70-78. Heyrðu, andskotinn hafi það. Þetta er orðið spennandi. 02:00 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Hilmar skora fjögur stig í röð af vítalínunni. 76-82. Tryggvi Snær Hlinason er kominn aftur inn á. Sama hvernig fer er baráttan allavega hetjuleg. 01:03 Tryggvi treður eftir sendingu frá Elvari, Litáar klikka og Elvar setur niður þrist. 81-83. Litáen tekur leikhlé. Er þetta að fara að gerast? Eru þeir að fara á taugum? Virkilega? Elvar býr sig undir að leggja boltann ofan í körfuna.vísir/hulda margrét 00:38 Elvar! Búmm! Annar þristur! 84-83. Ísland er komið yfir! Haltu kjafti, lagsmaður! 00:06 Tryggvi brýtur á Ignas Sargiunas. Hann setur niður víti. Og annað. 84-85. Andskotinn! Þetta er nú helvíti svekkjandi úr því sem er komið er. En Íslendingar taka leikhlé. 00:04 Elvar dripplar í fótinn á mótherja. Boltinn fer út af. Annað leikhlé. Áfram 84-85. 00:00 Elvar fær boltann, virðist hrasa en kemst framhjá varnarmanninum ... og sviss! Alsæla! Blái hluti Hallarinnar ærist af gleði. 86-85!!! View this post on Instagram A post shared by Körfuknattleikssamband Íslands (@kkikarfa) Já, við unnum bara Litáen. Það eitt og sér er afrek. En að vinna eftir að hafa verið 21 stigi undir þegar rúmar sjö mínútur voru eftir. Það er stöff fyrir sögubækurnar. Og svo var Gísli Marteinn bara veikur. Litáen var vissulega ekki með alla sína aðalkalla. En þetta er samt einn af risunum í körfuboltanum. Níu medalíur á stórmótum frá sjálfstæði 1990. Litáen ól Arvydas Sabonis, Sarunas Marciulionis og Domantas Sabonis. Körfubolti eru trúarbrögð þar í landi. Og talandi um trúarbrögð. Fyrirliði Íslands, Ægir Þór Steinarsson, leitaði þangað í lýsingum sínum á Elvari eftir sigurinn frækna í Höllinni í gær. Ég hef aldrei séð aðra eins frammistöðu eins og hjá Elvari hérna í fjórða leikhluta. Það var ótrúlegt. Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn. Hann átti gólfið, átti þennan leik og kláraði þetta. Þvílíkur leikmaður. Amen. Ægir hjó í sama knérum og Larry Bird þegar hann lýsti Michael Jordan eftir að hann skoraði 63 stig gegn ofurliði Boston Celtics vorið 1986. „Þetta var Guð í dulargervi Michaels Jordan,“ sagði Bird eftir leikinn í Garðinum fyrir fjörutíu árum. Elvar er ekki Guð, hann er ekki Michael Jordan en hann átti eina merkustu frammistöðu íslensks leikmanns í landsleik í gær. Og hann færði okkur líklega rosalegasta augnablik í sögu landsliðsins. Elvar skoraði 34 stig, sautján á síðustu fimm mínútunum og 45 sekúndunum og síðustu átta stig Íslands. Hann skoraði tuttugu stigum meira en næststigahæsti leikmaður íslenska liðsins (Tryggvi). Njarðvíkingurinn hitti úr þrettán af 22 skotum sínum og sex af sjö þristum rötuðu rétta leið. Svo tók hann líka fjögur fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum í þrígang. Bara af því þetta var þannig kvöld. Elvar gerði þetta sannarlega ekki einn. Tryggvi hefur oft verið meira afgerandi en er samt alltaf svo ótrúlega mikilvægur. Innkoma Hilmars var frábær (níu stig, þrjú fráköst og fjórar stoðsendingar á tæpum sautján mínútum), Ólafur Ólafsson setti niður tvo þrista og lét finna fyrir sér, Þórir hitti kannski bara úr einu skoti en hafði mikil áhrif á gang mála og svo mætti áfram telja. Íslensku leikmennirnir lentu mest 21 stigi undir í 4. leikhluta en gáfust ekki upp og komu eftirminnilega til baka.vísir/hulda margrét Það þurfti allar hendur á dekk. Martin Hermannsson var ekki með, Orri Gunnarsson meiddist illa á æfingu í aðdraganda leiksins og Haukur Helgi Pálsson datt út eftir hálfa mínútu. En það er á engan hallað þegar sagt er að þetta hafi verið kvöldið hans Elvars. Og þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann gerir þetta. Hann átti einnig stórleik í frábærum útisigri á Ítalíu, 76-81, í fyrsta leik undankeppninnar. Þar skoraði hann síðustu níu stig Íslands og endaði með 29 stig og fimm stoðsendingar. Njarðvíkingarnir Kristinn Pálsson og Elvar fagna í leikslok.vísir/hulda margrét Elvar er þriðji stigahæsti leikmaður undankeppni HM 2027 (24,0 stig að meðaltali í leik), tíundi stoðsendingahæsti (6,3) og sjötti framlagshæsti (23,7). Hann er með fimmtíu prósent skotnýtingu, 52,6 prósent nýtingu í þriggja stiga skotum og 90,9 prósent vítanýtingu. Elvar var hársbreidd frá því að skjóta Íslandi á síðasta heimsmeistaramót. En núna ætlar hann að koma Íslendingum þangað, með öllum tiltækum ráðum. Elvar spilar með Anwil Wloclawek í Póllandi.vísir/hulda margrét Þessi hógværi Njarðvíkingur hefur átt afar farsælan feril þótt kastljósið hafi ekki alltaf beinst að honum. Hann hefur verið stoðsendingakóngur í þremur deildum (Svíþjóð, Litáen og Hollandi/Belgíu) og í Evrópubikarnum, á stoðsendingametið í einum leik í grísku deildinni, varð sænskur meistari og valinn bestur í litháísku deildinni. Og það virðist ekkert hægjast á honum þrátt fyrir að hafa verið á sífelldri hraðferð í fullorðinsbolta frá því hann var sautján ára. Vonandi eru frekari landvinningar handan hornsins en sama hvað gerist verður föstudagskvöldið 27. febrúar alltaf kvöldið hans Elvars. Þar gekk hann á vatni.
HM 2027 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Utan vallar Tengdar fréttir Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Ísland vann stórkostlegan sigur á Litáen í kvöld. Liðið var yfir 20 stigum undir í seinni hálfleik en nagaði niður muninn og fékk sénsinn í lokin. Elvar Már Friðriksson tók sénsinn og tryggði sigurinn. Lokatölur 86-85. 27. febrúar 2026 22:38 „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. 27. febrúar 2026 22:58 Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann í kvöld sinn fyrsta sigur á Litháen síðan í janúar 1992. Íslenska liðið lenti mest 21 stigi undir í leiknum en tryggði sér 86-85 sigur með því að vinna lokaleikhlutann 32-17. 27. febrúar 2026 22:26 Mest lesið Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Handbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Varði skot mótherja með skónum sínum „Skutum í hringinn en ekki í körfuna“ Höttur endurheimti sætið í Bónus-deildinni Uppgjör: Stjarnan - ÍA 113-102 | Meistararnir mörðu Skagamenn LeBron James jafnaði leikjamet Robert Parish í NBA Fresta leik á Króknum vegna veðurs Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Uppgjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Friðrik Leó og félagar fóru auðveldlega yfir fyrstu hindrunina Uppgjörið: ÍR - KR 102-99 | Hetjuleg endurkoma ÍR-inga Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst áfram Náðu loksins saman um að bjarga WNBA eftir hundrað klukkutíma viðræður Tryggvi og félagar í undanúrslit FIBA Europe-bikarsins Fékk bara að byrja einu sinni en var samt valin best Dani: Við erum að taka næstu skref Sigrún: Það var mjög mikið sem gekk upp í dag Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands „Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“ Tvær breytingar á hópnum fyrir kvöldið Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Jón Axel drjúgur fyrir San Pablo í mikilvægum sigri Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ „Þessi Kane er stórhættulegur“ Sjá meira
Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Ísland vann stórkostlegan sigur á Litáen í kvöld. Liðið var yfir 20 stigum undir í seinni hálfleik en nagaði niður muninn og fékk sénsinn í lokin. Elvar Már Friðriksson tók sénsinn og tryggði sigurinn. Lokatölur 86-85. 27. febrúar 2026 22:38
„Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. 27. febrúar 2026 22:58
Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann í kvöld sinn fyrsta sigur á Litháen síðan í janúar 1992. Íslenska liðið lenti mest 21 stigi undir í leiknum en tryggði sér 86-85 sigur með því að vinna lokaleikhlutann 32-17. 27. febrúar 2026 22:26