Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. febrúar 2026 20:18 Ólafur segir verkið ganga vel. Framkvæmdum við Nýjan Landspítala miðar vel þessa dagana en þó er ekki gert ráð fyrir að hann verði tekinn í gagnið fyrr en árið 2030, eða fjórum árum á eftir áætlun. Á spítalanum verður stærsta bráðamóttaka Norðurlandanna.
Um tvö hundruð manns eru nú að störfum á framkvæmdasvæðinu og miðar vel áfram þessa dagana. „Framkvæmdirnar sem slíkar hafa gengið ágætlega. Hjúpurinn er að mestu leyti kominn utan á húsið og við erum byrjuð að innrétta legudeildirnar sem eru á fimmtu og sjöttu hæðinni,“ segir Ólafur Magnús Birgisson sviðstjóri framkvæmdasviðs Nýs Landspítala. Verið að gera göngubrú milli gamla og nýja Þá er verið að gera göngubrú á milli Nýja Landspítalans og Barnaspítalans sem tengir gömlu byggingarnar við þá nýju. Það var í júlí 2018 sem jarðvegsframkvæmdir fyrir spítalann hófust og stóð upphaflega til að spítalinn yrði tilbúinn á síðasta ári. Ýmislegt átti þátt í að seinka framkvæmdunum svo sem skortur á stáli og sementi fyrst eftir að Úkraínustríðið skall á og útboðsferli sem tóku lengri tíma en til stóð. Nú er áætlað að spítalinn taki á móti fyrstu sjúklingunum fyrr en haustið 2030. Töluvert hefur verið rætt um aðstöðuna á bráðamóttökunni í Fossvogi en Ólafur segir nýju bráðamóttökuna verða töluvert stærri. „Þetta verður gjörbylting þegar hún kemur og ég myndi skjóta á svona þrisvar sinnum stærra en við erum með núna í Fossvoginum. Hún verður sú stærsta í sjúkrahúsi á Norðurlöndunum. Auðvitað eru hinar Norðurlandaþjóðirnar með marga spítala þannig að þetta dreifist meira, en hjá okkur var mikið lagt upp úr því að vera með stóra bráðamóttöku.“ Einhverjir hafa bent á að þegar að spítalinn verði tekinn í gagnið sé mögulegt að hann verði í raun of lítill. Ólafur telur svo ekki vera og segir ekkert hafa verið rætt um að stækka spítalann frekar. „Ekki hérna að stækka á þessum stað hérna. Auðvitað er þjóðinni að fjölga og forsendur eru að breytast varðandi stærð og annað en miðað við skipulagstíma fyrir spítala þá er sjálfsagt kominn tími á að fara að huga að næstu staðsetningu og skipulagi ef við erum að horfa svona þrjátíu, fjörutíu ár fram í tímann.“
Landspítalinn Reykjavík Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira