Tilraun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu Magnús Þór Jónsson skrifar 21. febrúar 2026 18:01 Í liðinni viku ákvað Viðskiptaráð, ja eða einstaklingar á þeirra vegum, að gera tilraun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu með atrennu. Tilraunin fólst í aðför að veikindarétti hóps sem af einhverjum ástæðum virðist vera í miðjupunkti píluspjaldsins hjá Viðskiptaráði. Opinbert starfsfólk. Kollegar mínir í öðrum stéttarfélögum hafa í greinaskrifum bent á býsna skapandi útfærslu þeirra tölulegu gagna sem var kjarni atlögunnar að sjúkraliðum, kennurum, lögregluþjónum, sundlaugarvörðum og öðrum þeim sem ráðið telur vera doldið mikið að svíkjast um í vinnunni og hiki ekkert við að skrökva um réttindi sín. Ofan á tölfræðileik, án þess að leggja sig eftir því að útskýra mun á talningu daga veikindaréttar á almennum og opinberum markaði, var svo tímasetning úrtaksins valin út frá því ári á þessari öld þar sem sennilega engir staðlar voru eðlilegir. Covid árið 2020. Ég er hjartanlega sammála BSRB, ASÍ og BHM – þetta er auðvitað óboðlegur málflutningur og kannski ekki ástæða til að veita honum enn meira sviðsljós. Hvað liggur raunverulega að baki? Það er umhugsunarvert hvers vegna lykilfólk hjá Viðskiptaráði veður reglulega fram á ritvöllinn til þess að leggja sinn stóradóm á launakjör, heild eða hluta, annarra en þeirra aðila sem undir ráðið heyra. Ég neita að trúa því að um sé að ræða hreina fordóma gegn Ellu sjúkraliða, Dodda löggu, Siggu kennara eða öðrum þeim sem skrifin eru svolítið að segja að eigi að skammast sín fyrir að mæta ekki veik í vinnuna sína. Ástæðurnar hljóta að liggja annars staðar! Forsendur greinaskrifanna hljóta að vera þær að tala niður opinberan vinnumarkað og launafólk þar og um leið lyfta almennum markaði. Þá væntanlega með það að markmiði að gera almennan vinnumarkað eftirsóknarverðari fyrir launafólk eða þá að vera að leggja upp með það að þeim verkefnum sem opinber vinnumarkaður sinnir sé betur borgið í höndum einkaaðila. Ef við horfum fram hjá þeim neikvæða tóni sem Viðskiptaráð notar í málflutningi um veikindi hjá opinberum aðilum (tónn sem við hjá Kennarasambandi Íslands höfum vissulega greint í átt til íslenska menntakerfisins) og veltum fyrir okkur hvort að kjarni Íslandsmetsatlögunnar liggi í því að fá stjórnmálamenn, hjá ríki og sveitarfélögum, til að færa almennum markaði stærri sneið af „opinberu kökunni. Eigum við þá ekki bara að segja það upphátt og hætta að hreyta í störf fólks? Færsla verkefna – hvernig gengur? Það er afskaplega mikilvægt að velta fyrir sér hvernig hefur gengið þegar verkefni hafa færst frá opinberum markaði yfir til hins almenna. Það væri til dæmis hægt að byrja á að skoða opinber hlutafélög (sem eru jú mörg hver aðilar að Viðskiptaráði og koma þá að Íslandsmetsatlögunni) og sjá hvernig þeim hefur gengið að fóta sig. Ólík rekstrarform þekkjast í íslensku skólakerfi. Stærstur er hlutur einkarekstrar í leik- og tónlistarskólum en dæmi er einnig að finna í grunn- og framhaldsskólum. Sjást þar skýr merki um að betur gangi? Stutta svarið er nei. Við getum til dæmis bent á að hlutfall kennaramenntaðra í sjálfstætt starfandi leikskólum er 18% á meðan það er 26% í opinberum leikskólum og tölur um starfsmannaveltu allra skólagerða benda til þess að starfsmannavelta sé marktækt meiri hjá skólum utan opinbers markaðar. Mögulega mun einhver þá benda á að rekstur þeirra leikskóla gangi betur, en það væri líka vert að taka umræðu um það hvernig tekst að reka leikskóla á þann hátt að greiddur sé töluverður arður út úr þeim rekstri. Það kemur okkur sem fylgjumst með framlögum til opinberra leikskóla vissulega á óvart. Mikilvægi heildrænnar umræðu og heiðarleika Við hjá Kennarasambandi Íslands höfum síðustu ár verið að kalla eftir heildrænni umræðu um skólakerfið. Meðal annars til að taka umræðu um samtrygginguna sem íslenskt samfélag reiðir sig á upp úr hjólförum öskurorðræðu, í anda þess sem við höfum fengið að sjá í Simpson þáttunum þar sem gamli maðurinn fór út til að öskra á skýin. Hún skilar engu til almennings eða til að bæta starfskjör fólksins sem hefur snertiflöt við nær öll heimili landsins á einhvern hátt. Líklega er tilgangurinn að slá ryki í augu stjórnmálamanna sem á næstu mánuðum ætla að taka að sér það þjónustuhlutverk að reka sveitarfélögin fyrir samborgara sína. Þá á Viðskiptaráð bara að sýna þann manndóm að segja það upphátt án þess að sparka í opinbert launafólk, hóp sem býr svo sannarlega við þá kröfu í sinni vinnu að hlaupa stöðugt hraðar og vinna undir meira álagi en áður. Og þá er bara að fletta upp í einhverjum þeirra ótal rannsókna sem segja frá orsakasamhengi álags og aukinna veikinda. Ef markmiðið er að færa stærri hluta opinberrar þjónustu yfir til einkaaðila, þá á að hafa kjark til að segja það beint. Við getum tekið þá umræðu af yfirvegun og ábyrgð. En að bera á borð djöflasýru eins og þá sem birtist í niðurrifi á heilu starfsstéttunum – það er ekki stefnumótun. Það er pólitísk herferð. Við þurfum samtal sem byggir á gögnum, samhengi og virðingu fyrir fólkinu sem ber uppi samfélagið. Samtal um hvernig við nýtum opinbert fé skynsamlega og byggjum upp innviði sem standast álag. Það samtal er velkomið. Það hefst ekki með því að gera Ellu sjúkraliða, Dodda löggu eða Siggu kennara tortryggilega. Höfundur er formaður Kennarasambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Kjaramál Rekstur hins opinbera Mest lesið Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson Skoðun Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson skrifar Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar