Uppgjör: Álftanes - Valur 87-108 | Woods lykillinn að velgengni Valsmanna Árni Jóhannsson skrifar 20. febrúar 2026 21:20 Kári skoraði 13 stig og mataði sína menn með 7 stoðsendingum Vísir / Anton Brink Eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik þá varð frábær þriðji leikhluti til þess að Valsmenn báru sigur úr býtum á Álftanesi í dag. Keyshawn Woods skoraði 16 stig í leikhlutanum og keyrði liðið áfram. Lokatölur 87-108 í lokaleik 18. umferðar Bónus deildar karla í körfuknattleik. Fran Aron Booker leggur allt í sölurnar. David Okeke ryður honum um koll.Vísir / Anton Brink Fyrri hálfleikurinn var í góðu jafnvægi allan fyrri hálfleikinn og byrjuðu bæði liðin af fítons krafti. Enda mikið undir fyrir bæði lið en sigrarnir fara að verða nauðsynlegari þegar líður á. Callum Lawson gekk vel í byrjun leiks og þegar Justin James fann leiðina inn í teig þá fóru hlutirnir að malla fyrir heimamenn. Staðan var eftir fyrsta leikhlutann 23-26 og bæði lið gerðu vel á báðum endum vallarins. Sigurður Pétursson ver skot Kristófer Acox. Báðir áttu fínan leik.Vísir / Anton Brink Annar leikhluti var svipaður en það mátti merkja að hvorugt lið nýtti sér til fulls þá kafla þegar gert var vel varnarlega. Valsmenn, sem voru alltaf hænufeti á undan, náðu ekki að slíta sig frá og Álftnesingar náðu ekki að komast yfir eða jafna metin. Kári Jónsson var stigalaus lengi í fyrri hálfleik og Keyshawn Woods var kominn með sex stig þegar hálfleikurinn kom en staðan var 41-49 fyrir gestina. Lokaandartök hálfleiksins voru erfið fyrir heimamenn sem gerðu sitt besta til að vera nálægt Val en misstu boltann í lokasókn sinni og fengu körfu í andlitið. Baráttan í fyrirrúmi. Kristófer Acox og Justin James í hörkubaráttu.Vísir / Anton Brink Þegar þriðji leikhluti hófst þá var eins og Keyshawn Woods hefði fengið andann yfir sig. Hann hitti öllum skotunum sínum nánast í byrjun leikhlutans og áður en við var litið var hann búinn að skora 12 stig af 14 fyrir Val og staðan orðin 46-63. Leikhlé Hjalta Vilhjálmss. gerði ekkert og Valsvélin mallaði. Hún mallaði vel og þegar þriðja leikhluta var lokið var staðan 65-83 og Valur að kafsigla heimamenn. Álftanes gerði heiðarlegar tilraunir til að nálgast gestina en þær klikkuðu ítrekað þar sem Valsmenn strokuðu út öll stemmningsaukandi augnablik Álftaness. Heimamenn komust í 77-91 en þar með stoppaði það og Valsmenn sigldu sigrinum heim. Kári Jónsson skoraði 11 stig í seinni hálfleiknum og Igor Maric skoraði þrjá þrista í fjórum tilraunum og allir voru þeir veigamiklir og til þess að dempa stemmninguna hjá Álftanesi. Leikurinn endaði 87-108 og Valsmenn eru heldur betur að stíga stór skref í áttina að heimavallarrétti í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem nálgast. Atvik leiksins Þriðji leikhluti hjá Keyshawn Woods eins og hann leggur sig er atvik leiksins. Kappinn reyndi sjö skot, fimm tveggja stiga og tvö þriggja stiga, sem fóru öll ofan í. Álftanes réð ekki við hann og með hverri körfunni tæmdist sjálfstraustglasið. Gæði Justin James skinu í gegn en það dugði ekki til.Vísir / Anton Brink Stjörnur og skúrkar Margir leikmenn lögðu lóð sín á vogaskálarnar í kvöld og það er ekki hægt að velja einn skúrk. Álftanes er lið sem vantar sjálfstraust og þegar hlutir fóru að klikka fyrir þá þá syrti í álinn. Justin James setti niður 18 stig og gaf sex stoðsendingar fyrir heimamenn og Sigurður Pétursson skoraði 15 stig en þeir báru af fyrir heimamenn. Hjá Val komust níu leikmenn á blað. Callum Lawson skoraði 21 stig og Keyshawn Woods var með 22 eins og áður hefur komið fram. Kári Jónsson skoraði 13 stig og gaf sjö stoðsendingar og Kristófer Acox skilaði 16 stigum. Kristófer og Keyshawn voru báðir með 24 framlagspunkta. Umgjörð og stemmning Það væsir ekki um mann hér í Kaldalónshöllinni og stemmningin var frábær lengi vel í kvöld. Það varð þó þögn hér þegar Woods fór um eins og eldur í sinu en stuðningsmenn heimamanna voru fljótir að jafna sig. Dómarar leiksins Ég er kominn á þá skoðun að ef leikurinn gengur vel og fljótt og maður tekur varla eftir dómurunum þá var frammistaðan í góðu lagi. Það má hins vegar fara að endurskoða þá stefnu að dæma eins seint og hægt er. Það stuðar alla. Leikmenn, þjálfara, áhorfendur og blaðamenn. Finnur: Við erum betri í því að gera eitthvað Er bjartsýnn raunsýnismaður.Vísir / Anton Brink Leikur Álftaness og Vals var í jafnvægi í fyrri hálfleik og var þjálfari Vals, Finnur Freyr Stefánsson, spurður hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar til að keyra yfir andstæðinginn í kvöld. „Mér fannst við fara illa að ráði okkar í fyrri hálfleik. Mér fannst við leka fullmikið af stigum í fyrri hálfleik en við vorum fínir sóknarlega. Svo tekur Keyshawn yfir og stígur upp. Hann tekur ábyrgð og sýnir hvað í honum býr. Við erum með fullt af strákum sem eru hæfileikaríkir og það er erfitt stundum að fá ekki boltann alltaf en hann gerði mjög vel í þessum færu sínum og þegar hann komst í þetta „zone“ eins og við sjáum svo oft í þessari íþrótt.“ Þurfti Finnur að biðja Keyshawn Woods að taka ábyrgð? „Nei nei, maður sér það alltaf á honum þegar hann er ósáttur við sjálfan sig. Við ákváðum bara að fara til hans í fyrsta kerfi og einhvernveginn gerist þetta bara. Hann er frábær leikmaður og það er lítið sem ég get tekið hrós fyrir þar.“ Valsmenn hafa unnið tvo leiki í röð en það hlýtur að gefa Val aukið sjálfstraust. „Sigrarnir sjálfir gera það já en mér finnst vinnan sem við höfum lagt í þetta segja sitt líka. Það er mikil einbeiting í hópnum og menn leggja mikið á sig. Stundum er erfitt að færa hlutina af æfingagólfinu í leikinn en vinnan vonandi skilar sér þegar upp er staðið. Þetta er gott lið þó svo við höfum átt mjög lélega kafla. Við trúum þessu og þó maður sé rólegur og neikvæður þá er ég bjartsýnn maður að eðlisfari og ég trúi því að ef við höldum vel á spilunum, höldum áfram að vaxa þá getum við hvað sem er. Fyrst og fremst þarf liðsandinn og orkan að vera til staðar.“ Finnst Finn Valsmenn vera að nálgast það sem býr í liðinu? „Nei. Nei nei, mér finnst við eiga helling inni. Á báðum endum og það er allt í lagi. Þó ég sé bjartsýnn þá get ég líka verið neikvæður og séð það sem við getum gert betur. Körfubolti er bara þannig leikur að stundum erum við upp og stundum gerist bara eitthvað. Við erum betri í því að gera eitthvað en við þurfum að verða betri í þeim hluta leiksins.“ Hjalti: Gat verið súr í leikslok.Vísir / Anton Brink Fyrri hálfleikur Álftnesinga var flottur en þeir voru undir með átta stigum. Þjálfari liðsins, Hjalti Vilhjálmsson, var spurður að því hvað breyttist í seinni hálfleik. „Þeir bara setja nokkur skot í upphafi og hitna. Við bara brotnum svolítið niður. Það vantar sjálfstraust í liðið og það er augljóst. Það er búið að ganga illa og allt það. Menn ætluðu sér meira í vetur. Við þurfum að koma sjálfstrausti í þessa drengi.“ Sér Hjalti einhverjar leiðir til að koma sjálfstrausti í sína menn? „Við finnum einhverjar leiðir, það er bara svoleiðis. Við finnum einhverja leið til þess í landsleikjapásunni og reynum bara að mæta galvaskir í næsta leik. Sjáum hvað gerist.“ Justin James og fleiri leikmenn áttu fínan leik og það hlýtur því að vera súrt að fá ekki meira út úr þessum leik? „Já algjörlega. Það eru gæði þarna, það er bara svoleiðis en við verðum að finna leið til að láta þau geisla betur en við höfum verið að gera.“ UMF Álftanes Valur Bónus-deild karla
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti