Viðbrögð við grein ASÍ Christian Kamhaug skrifar 18. febrúar 2026 08:46 Vegna aðsendrar greinar frá Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur, lögfræðings hjá ASÍ og Sögu Kjartansdóttur, sérfræðings í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ þar sem m.a. er áskorun um að tryggjva starfsfólki í allri virðiskeðjunni mannsæmandi kjör, getum við sagt eftirfarandi:ASÍ hefur ávallt verið boðið á viðburði hjá okkur og við höfum gætt fullkomins gagnsæis. Þá höfum við hjá Wolt höfum ennfremur verið opin gagnvart vinnumarkaðssamningum sem gætu náð yfir þennan nýja hluta hagkerfisins. Í þeim tilgangi höfum við m.a. hitt ASÍ, fyrst í maí 2023 til að kynna þeim viðskiptamódel okkar. Í kjölfar þess fundar buðum við þeim að kynna sér hvað við erum raunverulega að greiða sendlum en þau hafa aldrei þegið það boð okkar en velja frekar að reikna út bjagaða mynd sem hentar þeim. Líkt og leigubílstjóri fær ekki greitt á meðan hann situr í bílnum sínum fyrir utan Leifsstöð fá verktakar ekki heldur greitt nema að þeir séu að sendast. Við útskýrðum m.a. 6. júní 2024 í aðsendri grein, þar sem ASÍ var svarað efnislega vegna nákvæmlega sama tilefnis og nú, að meðalgreiðsla til sendils byggði á eftirfarandi: Á meðan viðskiptavinur okkar greiðir yfirleitt á milli 499kr til 1499kr fyrir sendingu er meðal greiðsla til sendils 1720kr. Meðaltímakaup sendla á Íslandi er um 6.000 krónur. ASÍ virðist skorta umboð frá vinnandi fólki í þessum málaflokki ef marka má endurteknar árásir sem byggja á endurnýttu efni sem löngu hefur verið hrakið. ASÍ byggir umboð sitt á hefðbundnu vinnumarkaðsmódeli sem hentar ekki umhverfi verkvangsvinnu og ekki virðist vera vilji hjá þeim né geta til mæta þessum nýja hluta hagkerfisins. Ef til vill ætti ASÍ að hugleiða af hverju verktakar eru ánægðir með þetta fyrirkomulag og kjósa það þrátt fyrir að þeim bjóðist þau kjör sem ASÍ segist tryggja þeim. Hér er grein sem Elisabeth Steinersen, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, skrifaði 2024 vegna sama máls: https://www.visir.is/g/20242581475d/wolt-tekur-hlutverk-sitt-a-islandi-alvarlegaOg hér eru punktar sem ASÍ skautar framhjá: ASÍ er að bera saman tvo ólíka hluti: verktakagreiðslur og hefðbundið tímakaup launafólks með föstum vöktum. Verktakar sem starfa sem sendlar velja sjálfir hvenær þeir eru skráðir inn. Þeir fá greitt fyrir virkni og sendingar frekar en fasta vinnutíma (líkt og leigubílstjórar sem einnig geta verið verktakar). Margir nota þetta sem viðbótartekjur en ekki aðaltekjulind. Meðaltími í svona vinnu á Íslandi er um 10 klst. á viku samkvæmt nýjustu könnun. Þegar ASÍ reiknar „laun“ draga þau frá kostnaði eins og bílnotkun, en stór hluti verktaka notar reiðhjól eða tekur sendingu á leið sem þau hefðu farið hvort eð er. Mikilvægast: 91% af okkar verktökum á Íslandi sögðust í óháðri könnun kjósa verktökuna umfram annað fyrirkomulag. Að verktakar séu varnarlausir og ráði engu: Verktakar geta hafnað verkefnum. Þeir sjá greiðslu og vegalengd áður en þeir samþykkja. Engin krafa um lágmarksfjölda klukkustunda. Enginn yfirmaður úthlutar föstum vöktum. Fyrir marga er þetta fyrsta atvinnuformið þar sem þeir ráða raunverulega hvenær þeir vinna. 100 ár aftur í tímann..... Þá var engin slysatrygging (né önnur trygging) og engir formlegir samningar Wolt veitir ókeypis slysatryggingu meðan sendlar eru virkir Skýrt greiðslukerfi Virkt stuðningskerfi í appi Regluverk í Evrópu ESB-tilskipunin snýst um skýrari skil milli starfsmanna og verktaka, aukið gagnsæi í reikniritum og skýrari réttindi Wolt hefur verið eitt fyrsta fyrirtækið til að birta árlega gagnsæisskýrslu um reiknirit.... Undirboð á vinnumarkaði Á að banna sjálfstæða verktakavinnu ef hún uppfyllir ekki öll skilyrði kjarasamninga? Ef já, erum við að tala um að fella niður og/eða endurskilgreina risastóran hluta íslensks atvinnulífs. Er ekki nær að semja um þennan nýja hluta hagkerfisins? Innflytjendur neyðast.... 80% velja þetta fram yfir aðra valkosti Engar kröfur um íslenskukunnáttu Lágur inngangsþröskuldur inn á vinnumarkað (mikil inngilding) – brú frekar en einhver gildra Hvað er raunhagkerfið? 500+ íslenskir samstarfsaðilar Tekjur til veitingastaða og verslana Þúsundir smásendinga daglega, skila veltu Viðbótatekjur fyrir einstaklinga Aukið aðgengi fyrir fjölda einstaklinga að fjölbreyttum mat Höfundur er samskiptastjóri Wolt á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður ASÍ Heimsendingarþjónusta Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar