Landin sá til þess að Ísak og Guðmundur fengju silfur Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 17:48 Leikmenn TMS Ringsted mega vera stoltir af silfurverðlaunum sínum. TMS Ringsted Frábært bikarævintýri Íslendingaliðsins TMS Ringsted náði alla leið í úrslitaleikinn í Danmörku í dag en þar sagði Aalborg, eða réttara sagt markvörðurinn Niklas Landin, stopp.
Þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson áttu sinn þátt í að koma Ringsted í úrslitaleikinn í Herning, þar sem íslenska landsliðið lék einmitt í undanúrslitum og um brons á EM fyrir skömmu. Þeir unnu Sönderjyske í undanúrslitum í gær, 35-32, á 23 ára afmælisdegi Ísaks, en í úrslitaleiknum í dag voru yfirburðir Aalborg miklir og lokatölurnar 34-24. Hinn 37 ára gamli Niklas Landin, sem var svo sigursæll með danska landsliðinu, var valinn maður leiksins jafnvel þó að hann spilaði bara fyrri hálfleikinn. Niklas Landin er enn magnaður markvörður þó að hann sé hættur í danska landsliðinu.Getty/Tom Weller Það er vegna þess að Landin nánast lokaði markinu og var með 56,52% markvörslu! Hann varði sem sagt 13 af 23 skotum sem hann fékk á sig. Þessi tröllaframmistaða hafði í för með sér að Aalborg var 21-10 yfir í hálfleik og sigurinn í raun í höfn. Leikmenn Ringsted gáfust þó ekki upp og unnu seinni hálfleikinn með einu marki. Guðmundur Bragi skoraði úr eina skoti sínu í leiknum og átti tvær stoðsendingar. Ísak átti þrjár stoðsendingar en skoraði hins vegar ekki úr neinu af sex skotum sínum í dag.
Danski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira