Traust, trúverðugleiki og heilindi Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 15:00 Árið 2016 var sögulegt flokksþing Framsóknar haldið þar sem fram fór formannskjör. Þar var Sigurður Ingi Jóhannsson kjörinn formaður flokksins. Nokkuð margar tilraunir höfðu verið gerðar árin á undan til þess að fá mig til að ganga til liðs við flokkinn í nokkur ár þar á undan en alltaf sagði ég nei og hafði mínar ástæður fyrir því. En eftir þetta flokksþing sá ég að kominn var leiðtogi sem ég gat stillt mér á bakvið. Traustur, heiðarlegur, staðfastur en fyrst og fremst var hann bara eins og allir venjulegir landsmenn. Eðlilegur, þóttist aldrei vera neitt annað, hafði sína sannfæringu, stóð fastur með henni sama hvað en var alltaf tilbúinn að hlusta á það sem fólk hafði að segja. Traustur og trúverðugur er það sem ég horfði fyrst til. Síðar fékk ég að kynnast hver formaðurinn var í persónu í gegnum störf mín fyrir flokkinn. Maður sem hafði hjartað á réttum stað og vildi gera samfélaginu gagn. Hann var ekki í þessu til þess að pumpa upp sitt eigið egó eða komast til valda. Það kunni ég mikið að meta í hans fari. Ljóst er að ástæðan fyrir því að ég gekk til liðs við Framsókn, Sigurður Ingi, er að ganga inn í sitt síðasta flokksþing sem formaður eftir ótrúlega og viðburðarríka 10 ára formennsku. Hann hefur byggt upp grasrótastarf víða um land, öðlast traust þjóðarinnar og fólk lítur til hans í leit af skynsamri, hófsamri og sannleikshlaðinni umræðu. Ég mun ávallt vera þakklát Sigurði Inga fyrir hans störf í þágu flokksins sem unnin voru af heilindum og alltaf með hjartað á réttum stað. Það eru því mikil tímamót í mínu pólitíska lífi að leiðtoginn sem ég hef stutt sama hvað, haft óbilandi trú á og er jafnframt ástæðan fyrir því að ég gekk til liðs við flokkinn, sé að hætta. Ég get ekki skrifað grein í fyrsta sinn síðan árið 2024 og ekki nýtt þetta tækifæri til þess að þakka mínum formanni fyrir óeigingjarnt starf í þágu flokksins síðasta áratuginn. Sögulegan áratug að mínu mati. Núna fer fram 38. flokksþing Framsóknar og þar munum við kjósa okkur formann. Formann sem mun leiða flokkinn inn í næstu árin. Forystan sem við munum kjósa okkur um helgina þarf að búa yfir trausti, trúverðugleika og hafa sterka sýn á það hvert flokkurinn ætlar sér. Að vera formaður í stjórnmálaflokki sem staðsetur sig á miðjunni er ekki auðvelt verkefni þar sem meðalhófið og lausnamiðuð samvinnuhugsun á undir högg að sækja í þeirri pólariseringu sem á sér stað í íslensku samfélagi í dag. Það þarf kjark til að bjóða fram krafta sína til að leiða flokk á miðjunni, sem tapaði stórt í síðustu kosningum, tapaði trúverðugleikanum og á undir högg að sækja. Mín trú er sú að það á enginn að vera í pólitík ef það er til að haka í box, styrkja ferilskránna sína eða verða „atvinnupólitíkus.“ Slíkt fyrir mér er fráhrindandi og ekki rétt nálgun á verkefnið. Þú ferð í þessa vegferð því þú hefur hugsjón, brennandi áhuga á samfélaginu og trú á að þú getir gert samfélagið að betri stað fyrir fólkið í landinu. Ég hef starfað með Ingibjörgu Isaksen frá árinu 2021. Við erum ekki alltaf sammála og við höfum oft farið horn í horn en það hef ég lært að meta í hennar fari, því það er það sem þroskar heilbrigða pólitíska umræðu og þroskar sterkan flokk! Ingibjörg hefur að mínu mati, allt það sem sterkur leiðtogi stjórnmálaflokks þarf að búa yfir. Hún fær fólk með sér, er opin, aðgengileg, hlustar og hefur þann eiginleika að þú veist bara að hún hlustar og þú veist að hún hleypur strax með það sem þú bendir henni á að þurfi að laga eða þurfi að bregðast við. Hún bregður aldrei frá sinni sannfæringu og rekur sitt skip af mikilli festu og gerir kröfur til þeirra sem hún veit að standa undir þeim. Ég hef sjálf orðið vitni af því í þinginu að Ingibjörg fær símtal, tölvupóst eða skilaboð á Facebook og hún fer strax að vinna í því að skoða hvernig hún getur hjálpað viðkomandi. Þarna er manneskja með hjartað í verkefninu. Hún er ekki að reyna að haka í einhver starfsferilsbox í pólitík heldur er hún að þessu af öllu sem hún á. Ingibjörg er búin að byggja upp sterka grasrót, fjölga í Framsókn á Norðurlandi eystra, hún hefur sem þingflokksformaður lagt sig fram við það að rækta önnur kjördæmi líka, sýna áhuga á málefnum annarra kjördæma. Það er einmitt það sem leiðtogi gerir, þó það sé ekki endilega í þínum heimagarði, þá skiptir það engu að síður miklu máli. Minn leiðtogi leiðir af heilindum og af ástríðu fyrir samfélaginu. Að því sögðu, þegar Ingibjörg segist ætla að gera eitthvað þá veit ég að hún gerir það og hún gerir það af öllu hjarta. Það er það sem ég stilli mér á bakvið; persónan, keppnismanneskjan og leiðtoginn Ingibjörg Isaksen. Ég vel umfram allt traust, trúverðugleika og heilindi í næsta formanni Framsóknar. Fyrrum alþingismaður fyrir Framsókn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir Framsóknarflokkurinn Mest lesið Hvar eru karlarnir??? Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Saga af tveimur krónum: Rétturinn til að drukkna í nafni fullveldis Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Að kannast ekki við ábyrgð sína Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um meintan krónuflótta Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen Skoðun Vindmyllugarðar nei takk Lilja Rafney Magnúsdóttir Skoðun Hvað ætlar þú að verða? Rannveig Sverrisdóttir Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson Skoðun Fagmennska sem skiptir máli Bryndís Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fagmennska sem skiptir máli Bryndís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að kannast ekki við ábyrgð sína Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Um meintan krónuflótta Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru karlarnir??? Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Vindmyllugarðar nei takk Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Saga af tveimur krónum: Rétturinn til að drukkna í nafni fullveldis Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að verða? Rannveig Sverrisdóttir skrifar Skoðun Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Tékkar vilja halda krónunni og sömu rök eiga við um Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Ísland og nýja djobbið Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Raunhæf áætlun um endurheimt íslenskra fiskimiða Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þrír af hverjum fjórum Íslendingum styðja dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen Skoðun
Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson Skoðun
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Saga af tveimur krónum: Rétturinn til að drukkna í nafni fullveldis Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen Skoðun
Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson Skoðun