Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Eiður Þór Árnason skrifar 5. febrúar 2026 20:04 Ásta Fjeldsted er forstjóri Festi. Hún á von á enn betri niðurstöðu í ár. Vísir/vilhelm Félagið Festi, sem rekur Krónuna, Elko, Lyfju og N1, hagnaðist um 6,2 milljarða króna árið 2025. Það er rúmlega helmingsaukning frá fyrra ári. Framlegð, sem samsvarar mismuni á tekjum og helstu kostnaðarliðum við sölu vöru og þjónustu, jókst um 19 prósent milli ára og nam 36,7 milljörðum.
Vöru- og þjónustusala jókst um 12,3 prósent milli 2024 og 2025 en hagnaðaraukning nemur 35,3 prósentum milli ára án áhrifa einskiptiskostnaðar. Framlegðarstig var 25,4 prósent þvert á félagið í lok síðasta árs og 23,5 prósent af dagvörusölu. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins en stjórnendur gera ráð fyrir því að skila enn betri rekstrarniðurstöðu á yfirstandandi ári. Til stendur að N1 eignist 70 prósenta hlut í veitingakeðjunni Local og þá hefur Lyfja fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins. Á sama tíma hafi síðustu verslun Heilsuhússins verið lokað í janúar í hagræðingarskyni. „Öll rekstrarfélögin okkar eru að bæta sinn rekstur með aukningu í sölu á vörum og þjónustu ásamt því að ná fram hagræðingu á rekstrarkostnaði á sama tíma,“ er haft eftir Ástu S. Fjeldsted forstjóra í tilkynningu til Kauphallar. Ársfjórðungsniðurstöður allra rekstrarfélaga hafi farið fram úr áætlunum. Nam eiginfjárhlutfall félagsins 41,2 prósentum í árslok. Notfært sér stærð sína í samskiptum við birgja „Aukin umsvif, bætt stærðarhagkvæmni og aukin samlegð eru lykilþættir í bættri afkomu. Árangur hefur náðst með að halda kostnaði niðri og nota stærð samstæðunnar í samskiptum við birgja og erlenda samstarfsaðila með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum sem hagstæðasta verð á hverjum tíma. Sömuleiðis hefur markvert átak í minnkun rýrnunar í verslunum skilað sér í hækkun framlegðarstigs og bættrar rekstrarafkomu þvert á samstæðuna milli ára,“ er haft eftir Ástu. Fram kemur í tilkynningu að afgreiðslum í Krónunni hafi fjölgað um 7,5 prósent milli ára og velta netverslunar Krónunnar aukist um 50 prósent. Þá hafi aðsókn í vörur hjá Elko aldrei verið meiri. „Horfur fyrir árið 2026 eru ágætar þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála með hækkandi verðbólguspám fyrir fyrri helming ársins. Festi gerir ráð fyrir svipuðum fjölda ferðamanna og á síðasta ári og er búist við því að allir starfsþættir bæti afkomu sína milli ára,“ segir í tilkynningu. Festi er skráð í Kauphöll Íslands en margir stærstu eigendur félagsins eru íslenskir lífeyrissjóðir.
Festi Kauphöllin Uppgjör og ársreikningar Tengdar fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Lyfja hefur fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins, sem var stofnað af Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni árið 2004. Samhliða breytingunum mun verslun Jurtaapóteksins á Laugavegi loka. 5. febrúar 2026 11:48 Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Heilsuhúsinu í Kringlunni verður lokað þann 1. febrúar næstkomandi. Það er í eigu Lyfju en framkvæmdastjóri segir ástæðuna fyrir lokuninni vera erfið rekstrarskilyrði. Vörumerkið muni lifa áfram á netinu, vörur seldar á samnefndri vefsíðu Heilsuhússins og þær jafnframt áfram seldar í apótekum Lyfju. 8. janúar 2026 10:18 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira
Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Lyfja hefur fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins, sem var stofnað af Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni árið 2004. Samhliða breytingunum mun verslun Jurtaapóteksins á Laugavegi loka. 5. febrúar 2026 11:48
Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Heilsuhúsinu í Kringlunni verður lokað þann 1. febrúar næstkomandi. Það er í eigu Lyfju en framkvæmdastjóri segir ástæðuna fyrir lokuninni vera erfið rekstrarskilyrði. Vörumerkið muni lifa áfram á netinu, vörur seldar á samnefndri vefsíðu Heilsuhússins og þær jafnframt áfram seldar í apótekum Lyfju. 8. janúar 2026 10:18