Eyðimerkurganga Félags fósturforeldra Guðlaugur Kristmundsson skrifar 5. febrúar 2026 15:31 Ég get ekki ímyndað mér annað en að íslenskt samfélag deili þeim óþægindum og reiði með samfélagi fósturforeldra þegar við heyrum af meðferðum þeirra drengja sem voru sendir í fóstur í Bakkakoti. Þessir menn sem stigu fram með sínar sögur sýndu gífurlegt hugrekki og nú verður að grípa til aðgerða til að tryggja, líkt og þeir segja sjálfir, að þetta komi ekki fyrir neitt annað barn. Þetta er með öllu ólíðandi en því miður kemur bæði skortur og vanmáttur eftirlitsins og stuðningsins á fósturkerfinu okkur í Félagi fósturforeldra ekki á óvart. Samkvæmt könnun meðal félagsmanna sem var framkvæmd árið 2025 kannaðist um fimmtungur fósturforeldra ekki við að árlegt og lögboðið eftirlit væri framkvæmt. Ég fagna því að forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmál (GEV) sé mætt til umræðu um málefnið, en hún hefur ekki sjálf tekið þátt í þeim samtölum sem félagið hefur átt við stofnunina. Það hefði verið heiðarlegra af forstjóranum að draga það fram hversu langan tíma það hafi tekið fyrir okkur að fá fyrstu áheyrn og að forstjórinn sjálfur hafi ekki verið til viðtals í því takmarkaða samtali. Ef forstjóri GEV hefði setið þessa fundi, hefði hún sjálf heyrt bón okkar um að frumkvæðisathugun yrði gerð með sveitarfélögunum á þeirra eigin eftirliti með fóstri og ítrekaðar ábendingar okkar um þau fjölmörgu dæmi þess að barnaverndarþjónustur sinntu ekki lögbundnu lágmarki vitjana með fóstri eða stuðningi við fósturforeldra. Það sést vel á þeim rannsóknum og athugunum sem eru listaðar upp af hálfu GEV í þessum málaflokki að það snýr að afmörkuðum þáttum og einstaka málum en sjaldnar að viðvarandi kerfislægum vandamálum í málaflokknum sem ítrekað hefur verið bent á. Við höfum kallað eftir því að kannað yrði og sveitarfélög krafin um það hvernig þau framkvæma lögboðið eftirlit sem þau sjálf eiga að sinna með þeim börnum sem þau senda í fóstur. Það hefur ekki enn gerst á þeim árum sem stofnunin hefur starfað. Flestir fundir Félags fósturforeldra hafa snúið að lagatæknilegum atriðum, þar sem að við ræðum að fósturforeldrar senda inn kvartanir til GEV en hefðu átt að senda inn ábendingu - já eða öfugt. Það er nefnilega ekki einfalt að eiga í samskiptum við GEV og flestir fósturforeldrar sem hafa þurft að leita til þessarar eftirlitsstofnunar hafa þurft handleiðslu frá sjálfboðaliðum Félags fósturforeldra. Því GEV er duglegra við að flokka hvort að erindin berist sem ábendingu eða kvörtun, en það fer eftir því hvort að það sé virkur fóstursamningur um varanlegt fóstur eða ekki. Fundirnir okkar hafa verið flestir á þá leið að við erum að upplýsa starfsmenn GEV um það hvernig kerfið snýr að okkur eða að reyna að fá þau til þess að láta af þeim ósið að hafna tilkynningum eða kvörtunum, því að tilraunir til að vekja athygli stofnunnarinnar á hvar þau mættu sinna eftirlitsskyldu sinni til að auka gæði í fósturmálum berist ekki í réttum flokki til þeirra. Þá höfum við einnig bent á vanmátt stofnunarinnar að ná mikilvægum markmiðum sínum. Því ef GEV getur einungis brugðist við viðvarandi vandamálum sem stofnunin sjálf og allar aðrar sem koma að fósturmálum vita af í krafti þess að fósturforeldrar stilli sér upp á eldlínuna með fósturbörn sín og kvarti formlega yfir barnaverndarþjónustu sem fer með mál þeirra barna og taki þannig áhættu á neikvæðum áhrifum þess á áframhald fóstursins þá er líklegra að rótgróin vandamál viðgangist en að þau leysist. Ég er svolítið búinn á því eftir gærdaginn. Eftir að ég mætti í Morgunútvarp Rásar 2 í gærmorgun hefur dagurinn þróast með ótrúlegum hætti og fleira hefur komið í ljós. Ég gat ekki ímyndað mér að ég fengi símtöl og skilaboð frá fólki sem var í Bakkakoti og segði mér frá ógeðfelldara ofbeldi og misnotkun en þeirri sem var lýst í þætti Kveiks. Vinum og fólki í mínu persónulega tengslaneti sem ég hafði ekki hugmynd að hefðu verið í fóstri á sínum tíma. Það er ekkert víst að þessar frásagnir komi nokkurn tíman fram, þetta eru aðilar sem treysta sér ekki að opinbera sig eða stíga fram. Hvað þá að horfa á þátt Kveiks. En GEV ætlar að halda áfram á eigin vegferð og það er eins gott að vita þá í hvaða box á að merkja ef það á að láta vita af því hvar pottur er brotinn. Já og svo þurfa auðvitað að vera heimildir til staðar, en það fáum við að heyra reglulega frá þeim. Það kann að koma mörgum á óvart að sveitarfélag getur ákveðið að rifta samningi um varanlegt fóstur við fósturforeldra og frá þeirri stundu hafa fósturforeldrar ekki lengur aðild að máli og hafa því ekki rétt á að kvarta undan meðferð og ákvörðunum barnaverndarþjónustunnar í máli barnanna sem þau hafa fóstrað. Þá má búast við að GEV vísi málinu frá. Þá er staða barna í tímabundnu fóstri enn lakari gagnvart stofnuninni. Þetta réttlætismál ætlar GEV ekki að ávarpa, þau hafa bent okkur, sjálfboðaliðunum, á að taka þátt mál áfram við ráðuneytið ásamt öðrum þeim málum sem við berum á borð, en þar höfum við einnig mætt miklu fálæti. Saga sjálfboðaliðanna sem starfa fyrir Félag fósturforeldra heldur áfram, fylgist með í næsta þætti þegar við segjum frá fleiri eyðimerkurgöngum í samskiptum við fleiri stofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög. Höfundur er formaður Félags fósturforeldra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðlaugur Kristmundsson Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Lest í stað Borgarlínu? Runólfur Ágústsson,Orri Björnsson,Kjartan Már Kjartansson Skoðun Díhýdrómónóxíð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson Skoðun Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir,Sigríður Valdís Bergvinsdóttir Skoðun Hvoru megin ætlar þú að sitja? Valdimar Víðisson Skoðun Ætla þessir öryrkjar að setja samfélagið á hausinn? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Grásleppufrumvarpið er mikil afturför Jens Guðbjörnsson Skoðun Félagsmiðstöðvar sem lykilþáttur í uppvexti ungmenna Rebekka Ósk Friðriksdóttir Skoðun Þegar orð verða vopn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar orð verða vopn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Reykjavík situr föst – og biðin er orðin stefna Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Sterk sýn dugar ekki ef enginn hlustar Rúna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar sem lykilþáttur í uppvexti ungmenna Rebekka Ósk Friðriksdóttir skrifar Skoðun Austurland er þjóðinni mikilvægt Heimir Snær Gylfason skrifar Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem velur framþróun yfir stöðnun Benóný Valur Jakobsson skrifar Skoðun Græna gímaldið: Minnisvarði um glötuð tækifæri Davíð Bergmann skrifar Skoðun Grásleppufrumvarpið er mikil afturför Jens Guðbjörnsson skrifar Skoðun Lest í stað Borgarlínu? Runólfur Ágústsson,Orri Björnsson,Kjartan Már Kjartansson skrifar Skoðun Díhýdrómónóxíð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Fjármögnun framhaldsskóla Róbert Örvar Ferdinandsson skrifar Skoðun Hvoru megin ætlar þú að sitja? Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Tæplega 10% fatlaðra barna stunda íþróttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun Leyfum íslenskum menntaskólanemum að kynnast latínu! Sólveig H. Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Ætla þessir öryrkjar að setja samfélagið á hausinn? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Lego án leiðbeininga Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Griðastaður í amstri dagsins Rósa Björg Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun sem undirstaða hagvaxtar Sigrún Ólafsdóttir,Kári Kristinsson skrifar Skoðun Vísitöluafglöp fyrr og nú Helgi Tómasson skrifar Skoðun Spyrja tjattið? Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir,Sigríður Valdís Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Aðför að verðmætasköpun Guðveig Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Til hæstvirts mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland skrifar Skoðun Er Reykjavíkurleiðin að fara að breyta landslaginu í leikskólum til betri vegar - eða er hún aðeins skyndilausn? Brynhildur Yrsa Valkyrja skrifar Skoðun Loftslagssvindl eða hrein og klár vankunnátta frambjóðanda Miðflokksins? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir,Sigríður Valdís Bergvinsdóttir Skoðun
Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar
Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir,Sigríður Valdís Bergvinsdóttir skrifar
Skoðun Er Reykjavíkurleiðin að fara að breyta landslaginu í leikskólum til betri vegar - eða er hún aðeins skyndilausn? Brynhildur Yrsa Valkyrja skrifar
Skoðun Loftslagssvindl eða hrein og klár vankunnátta frambjóðanda Miðflokksins? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir,Sigríður Valdís Bergvinsdóttir Skoðun